Haukar mæta hollensku liði
Íslands-og bikarmeistarar Hauka í handknattleik karla, drógust gegn hollenska lðinu, Van der Voort Quintus, í fyrstu umferð Evrópukeppni félagsliða en dregið var í morgun. Fyrri leikurinn fer fram í Hollandi 8. eða 9. september, en leikurinn í Hafnarfirði verður viku síðar. Quintos hafnaði í öðru sæti í hollensku deildinni á síðustu leiktíð.HK situr hjá í fyrstu umferð í Evrópukeppni bikarhafa og sömu sögu er að segja af Fram sem tekur þátt í Áskorendakeppninni, sem áður hét Borgarkeppni Evrópu. Fram og HK leika því í nóvember og verður dregið um þeirra andstæðinga 16. október.
