Skipulagskrá minningar- og styrktarsjóðs Hauka

SKIPULAGSSKRÁ

fyrir Minningar- og styrktarsjóð Knattspyrnufélagsins Hauka.

 

  1. gr.

Sjóðurinn er upphaflega stofnaður af ættingjum og vinum Garðars S. Gíslasonar þ. 12. apríl 1976, sem leggur til þessum nýja sjóði sjóðinnistæðu sína, nú kr. 516.192,85, sem er stofnframlag.

  1. gr.

Tekjur sjóðsins eru raunvextir, sala minningarkorta, áheit og gjafir er berast sjóðnum.

  1. gr.

Tilgangur sjóðsins er að veita Haukafélögum stuðning til iðkunar íþrótta og félagslegrar aðstöðu svo og að styrkja uppbyggingu félagssvæðis á Ásvöllum.

  1. gr.

Sjóðurinn skal vera í vörslu aðalstjórnar Hauka sem kýs honum stjórn. Reikningar sjóðsins skulu lagðir fram  á  aðalfundi Knattspyrnufélagsins Hauka ár hvert, endurskoðaðir af endurskoðendum Knattspyrnufélagsins Hauka. Bókhaldsár sjóðsins skal vera hið sama og aðalstjórnar félagsins.

Sjóðinn skal ávaxta í verðtryggðum skuldabréfum eða á annan jafn arðbæran og tryggan hátt. Aldrei má veita lán úr sjóðnum eða veðsetja hann og stofnfé skal ávallt haldast óbreytt.

  1. gr.

Því aðeins er hægt að leggja sjóðinn niður, að allir stjórnarmenn hans samþykki það svo og meirihluti aðalstjórnar félagsins og aðalfundur félagsins.

Verði ákveðið að leggja sjóðinn niður skulu eigur hans renna til Knattspyrnufélagsins Hauka og skulu þær notaðar til styrktar starfi yngstu meðlima félagsins.

  1. gr.

Stjórn sjóðsins skal skipuð 3 mönnum, kosnum af stjórn Hauka. Einn skal hafa prókúruumboð á fjárreiðum sjóðsins, annar vera ritari og þriðji meðstjórnandi. Stjórn sjóðsins skal skipuð til eins árs í senn. Í fyrsta sinn 1995.

Fyrir 30. júní  ár hvert skal senda Ríkisendurskoðun reikning sjóðsins fyrir næst liðið starfsár, sbr. lög. nr. 19 frá 1988.

  1. gr.

Stjórn sjóðsins annast úthlutun styrkja. Umsóknir um styrki skulu vera skriflegar og rökstuddar. Úr sjóðnum má veita hverju sinni 3/4 hlutum tekna hans frá síðustu úthlutun. Tekjuafgang skal leggja við stofnfé  hverju sinni.

  1. gr.

Ákvæðum þessarar skipulagsskrár má aðeins breyta á aðalfundi Knattspyrnufélagsins Hauka og með samþykki sjóðsstjórnar.

  1. gr.

Heimili og varnarþing sjóðsins er í Hafnarfirði.

  1. gr.

Leita skal staðfestingar dómsmálaráðherra á skipulagsskrá þessari sbr. lög. nr. 19/1988.

 

Ákvæði til bráðabirgða

Opið er öllum að gerast stofnfélagar Minningar- og styrktarsjóðs Knattspyrnufélagsins Hauka. Stofndagur er 12. apríl 1995. Þeir sem vilja  gerast stofnendur verða að skila framlagi fyrir 12. apríl 1996.

Framanritað er gert með fullu samþykki og samráði ættingja Garðars S. Gíslasonar.

 

Hafnarfirði 12. apríl 1995,

 

 

stjórn Minningarsjóðs Garðars S. Gíslasonar,

Bjarni Hafsteinn Geirsson       Guðmundur Aðalsteinsson      Pétur Árnason

 

 

Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.

 

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 14. febrúar 1997.