Tvö lið með 12 rétta í getraunaleik Hauka 221

HaukarGetraunaleikur Hauka 221 hófst síðastliðinn laugardag 21. nóvember.  Leikurinn fór vel af stað og nú þegar eru komin yfir 65 lið í keppnina.  Hægt er að skrá sig í getraunaleikinn á næsta leikdegi en síðan verður leiknum lokað.  Mikil stemming var meðal Haukafélaga sem sjá getraunaleikinn sem frábæran vettvang fyrir stutta samverustund og spjall í góðra vina hópi.  Það var sérstök ánægja að sjá Haukafélaga sem ekki hafa komið í húsið lengi.  Það voru síðan tvö lið sem voru með 12 rétta í 47 leikviku.   Það eru getspekingarnir Bjarni Hafsteinn Geirsson og Gissur Guðmundsson sem eru prímusmótorar í liðunum og hafa þeir þar með tekið forystu í getraunaleiknum.  Þess má einnig geta að Gissur keypti sér röð hjá Getraunum og fékk rúmlega 20 þúsund krónur í vinning.