Úrslit æfingarnar þann 23. jan.

Það var frekar slæm mæting, en aðeins 6 mættu, tekin var tvöföld umferð. Hún endaði með því að Varði og Jón urðu efstir, báðir með 8 vinninga. En úrslitin í heild sinni voru svona:

1.-2. sæti Jón og Varði með 8 v.
3. Ingi með 7 v.
4. Aui með 5 v.
5.-6. Kristján og Rúnar með 1 v.

Eftir tvöföldu umferðina fór Rúnar heim og Herbert kom og telfdi með okkur í liðakeppni. Enn báru þeir Jón, Ingi og Kristján sigur á Varða, Aua og Herbert með 2 vinningum, 5,5 – 3,5.

Eins og nú þegar hefur verið tilkynnt verður engin æfing í kvöld en ég von að sem flestir mæti á æfingu næsta þriðjudsg, þann 6. febrúar.

Ég segi bara: „Áfram Ísland!“