Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Reglur getraunaleiks Hauka 221

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Reglur hópleiks Hauka 221-getrauna

 

1. grein

Hópleikurinn er öllum opinn sem vilja taka þátt í getraunastarfi Hauka 221. Tveir einstaklingar mynda hvern hóp og gefa honum nafn til aðgreiningar frá öðrum hópum. Þátttökugjald er kr. 4.000.- fyrir hópinn og greiðist í síðasta lagi við skráningu.

 

2. grein
Hópunum er síðan skipt í riðla þannig að aldrei séu færri en 6 hópar í hverjum riðli og aldrei fleiri en 12.

 

3. grein

Hópurinn sendir inn tvo seðla á þar til gerð blöð sem Hauka-getraunir láta í té. Þessir tveir seðlar skulu hvor um sig innihalda 7 leiki með einu merki og 6 leiki með tvítryggingu.

 

4. grein

Raðirnar skulu vera komnar til Hauka-getrauna fyrir lokun sölukerfis íslenskra getrauna. Tekið er á móti röðunum á laugardögum í Félagsheimili Hauka, Ásvöllum frá kl. 10.00-13.00 til loka sölukerfis íslenskra getrauna. Einnig er hægt að senda raðirnar, á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

5. grein

Riðlakeppnin stendur yfir í 11 vikur og telja 10 bestu raðirnar. Að lokinni riðlakeppninni fara tveir efstu hóparnir úr hverjum riðli í úrvalsdeildina. Auk tveggja efstu félaga fara í úrvalsdeild þau þrjú lið sem eru með besta skorið í þriðja sæti (en 4 lið ef heildarfjöldi liða er meiri en 40).  Þau lið sem eru efst í sínum riðli taka með sér tvö stig í úrslitin og þrjú stigahæstu liðin í öðru sæti 1 stig.

Úrvalsdeildin stendur í 5 vikur og sigurvegarinn verður svo krýndur.

Þau lið sem ekki komast í úrvalsdeildina keppa í 5 vikur um “Framrúðubikarinn”.

 

6. grein

Raðirnar sem hóparnir senda inn fara ekki sjálfkrafa í sölukerfi íslenskra getrauna, heldur þarf hver hópur að senda þær þangað sérstaklega.

 

7. grein

Gleymi hópur að senda inn raðir eina vikuna þá fær liðið einu færra rétta en lægsta skor vikunnar í keppninni.

 

8. grein

Þegar spilað er í úrslitum eða lið eru jöfn í riðlakeppninni þá kemst það lið áfram sem hefur fleirri útisigra rétta. Sé enn jafnt þegar útisigrar eru taldir þá gilda jafnteflisleikir. Sé enn jafnt þegar þeir leikir eru skoðaðir þá er varpað hlutkesti.

Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 08 Janúar 2013 10:01 )  
Borði


Molar

Haukastúlkur urðu Íslandsmeistarar í handbolta í fyrsta sinn árið 1945.  Í meistaraliðinu voru þær Svava Júlíusdóttir, Guðbjörg Magnúsdóttir, Soffía Júlíusdóttir, Guðný Guðbergsdóttir, Sigurlaug Arnórsdóttir og Kristín Þorvarðardóttir. (heimild Haukar 60. ára, bls. 50)

samstarfsadilar

Borði