Bikarmeistarar 2026!

Haukar léku til úrslita í bikarkeppninni 2026 bæði í karla og kvenna flokki um helgina. Stelpurnar voru ríkjandi bikarmeistarar og gerðu hvað þær gátu til að verja titilinn. Valur var þó of stór biti og unnu þær Haukastelpur 19-23 og tóku bikarinn með sér heim á hlíðarenda. Seinni leikurinn á laugardeginum var úrslitaleikur hjá strákunum […]

Bikarmeistarar 2025!!

Meistaraflokkur kvenna í Haukum tryggði sér sigur í Powerade bikarnum síðastliðinn laugardag þegar þær lögðu Fram í spennandi úrslitaleik. Lokatölur leiksins urðu 20-25 Haukunum í vil. Þetta er sögulegur sigur fyrir Hauka, þar sem liðið hefur beðið í heil 18 ár eftir því að lyfta bikarmeistaratitlinum í kvennaflokki. Síðast unnu Haukar bikarinn árið 2007, en […]

Spennandi Evrópuleikir á Ásvöllum – Komum og hvetjum stelpurnar til sigurs!

English below 🙂 Næstu helgi spilar Meistaraflokkur kvenna tvo spennandi leiki í EHF Bikarnum á móti úkraínska félaginu HC Galychanka Lviv í 16 liða úrslitum. Þetta verður þriðji mótherji stúlknanna í keppninni, en nú fáum við loksins að sjá þær spila á heimavelli hér á Íslandi. Fyrrileikurinn fer fram á laugardaginn 11. janúar klukkan 17:00 […]

Haukar í 16 liða úrslit í Evrópubikarnum.

Strákarnir tryggðu sér áframhaldandi þátttöku í 16-liða úrslitum Evrópubikarsins um helgina. Haukastrákarnir sigruðu liðið KUR frá Azerbaijan í tveimur leikjum. Fyrri leikur liðanna endaði 30-25 og sá síðari 27-38. Samanlagt sigruðu Haukar einvígið 68-52. Glæsilegur árangur hjá þeim! Dregið verður í næstu umferð á föstudaginn 6. desember. Næsta umferð í Evrópubikarnum fer fram í febrúar. […]

Vetrarstarfið að fara að hefjast

Nú er allt að fara á fullt í vetrarstarfi Knattspyrnufélagsins Hauka. Æfingar hefjast hjá handknattleiksdeild, knattspyrnudeild og körfuknattleiksdeild mánudaginn 26. ágúst. Æfingar hefjast hjá karatedeildinni og skákdeildinni 2. og 3. september. Hægt er að nálgast upplýsingar um æfingartöflu viðkomandi deilda með því að smella hér. Skráning æfingargjalda fer fram í gegnum Sportabler og er það […]

Haukastelpur á HM í Norður-Makedóníu

Á dögunum lauk heimsmeistaramóti U-20 ára kvenna í handbolta en það voru fjórir leikmenn frá Haukum í liðinu. Íslenska liðið náði sögulegum árangri en það endaði í 7. sæti á mótinu sem haldið var í Norður Makedóníu en það er besti árangur kvennaliðs frá Íslandi sem náðst hefur hingað til. Í liðinu voru þær Rakel […]

Það er gaman í handbolta

EM í handbolta karla er farið af stað og í tilefni þess ætlum við hjá handboltanum í Haukum að bjóða öllum krökkum að koma og æfa FRÍTT hjá okkur í janúar FREE HANDBALL TRYOUTS FOR ALL KIDS IN JANUARY      

ODDALEIKUR – MIÐASALA Í KVÖLD Á ÁSVÖLLUM

ENN EINHVER MIÐAR TIL ATH ~ MIÐAR Á LEIKINN Miðasala á Ásvöllum frá kl 18-20 í kvöld. Nauðsynlegt að vera með Stubb appið uppsett til að fá miða. Þetta eru einungis miðar fyrir Hauka. Það kemst enginn Haukamaður inn á leikinn með ÍBV miða og öfugt. ÁFRAM HAUKAR Sendið skilaboð á instagram, facebook eða handbolti@haukar.is […]

ÚRSLITAKEPPNI KARLA OG KVENNA

Það hefur aldeilis verið mikið í gangi í handboltanum síðustu vikur og dramatíkin allsráðandi á Ásvöllum. Framlengingar, flautumörk og líklega einhver hjartaflökt – Það er óhætt að segja að áhorfendur hafi fengið sitt fyrir skyldinginn. Meistaraflokkur karla vann leik tvö í 4-liða úrslitum gegn Aftureldingu í gærkvöldi en Brynjólfur Snær skoraði á lokasekúndum leiksins. Staðan […]