Stelpurnar fara loksins af stað á ný

Það er komið að fyrsta leik ársins í Olísdeild kvenna en þá mæta Fram stúlkur í Schenkerhöllina á þriðjudaginn kl. 19:30. Leikurinn er sá fyrsti á nýju ári og fyrsti leikur liðanna í tæpa 2 mánuði eftir landsliðs- og jólafrí en liðin mæta því handboltaþyrst í leikinn. Fyrir leikinn eru Haukastúlkur í 4. sæti deildarinnar […]

Síðasti heimaleikur ársins í Olísdeild karla

Þá er komið að síðasta heimaleik ársins. Það hefur ekki gengið sem skildi í síðustu leikjum en strákarnir eru staðráðnir í að enda árið á góðum nótum á sunnudag þegar að KA kemur í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 16.30. Allt Haukafólk er hvatt til að taka sér smá frí frá jólaundirbúningnum og skella sér á […]

Afturelding kemur í heimsókn í bikarnum í kvöld

Það er stutt á milli stórleikjanna þessa vikuna því eftir Hafnarfjarðarslaginn á mánudag er strax komið að því að hugsa um næsta leik. Sá leikur er í kvöld, fimmtudag, þegar að Afturelding kemur í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 19:30 í 16 liða úrslitum Coca-Cola bikarsins. Þetta verður bikarslagur af bestu gerð þar sem að ekkert […]

Toppslagur í Grill66 deildinni

Það er leikdagur hjá U-liðinu okkar en í kvöld leika þeir sinn seinasta leik fyrir jóla- og landsliðsfrí. Leikurinn í kvöld er ekki að verri endanum því að Fjölnir kemur í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 19.30. Fyrir umferðina eru liðin í 1. og 2. sæti deildarinnar en það munar aðeins 2 stigum á liðunum og […]

Haukar halda á Hlíðarenda

Það verður sankallaður stórleikur í Olísdeild karla í kvöld þegar að meistarflokkur karla etur kappi við Val í toppslag umferðarinnar. Leikurinn er leikinn í Origo-höll þeirra Valsmanna og hefst hann kl. 19.30. Þessi lið hafa spilað marga stórleikina síðustu ár og er ekki von á öðru í kvöld en fyrir leikinn eru liðin í 1. […]

Stórleikur í Olísdeild karla í kvöld

Það verður boðið upp á stórleik í Olísdeild karla í kvöld þegar að strákarnir í meistaraflokki fá Íslandsmeistara ÍBV í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 19:15. Strákrnir eru sem stendur í efsta sæti deildarinnar og eru staðráðnir í að halda því. Það er tilvalið fyrir alla fjölskylduna á mæta á þennan flotta handboltaleik og hægt er að […]

Stórleikur í Schenkerhöllinni í kvöld

Það verður boðið upp á stórleik í kvöld, mánudagskvöld, í Schenkerhöllinni þegar að meistaraflokkur Hauka í handbolta fær Selfoss í heimsókn kl. 19:30. Fyrir leikinn eru liðin í 1. og 3. sæti með 12 og 10 stig það er því mikið um að keppa í leiknum en með sigri geta Haukar náð toppsætinu. Liðin hafa […]

HK kemur í heimsókn í Olísdeild kvenna

Það er stutt á milli leikja þessa daganna hjá stelpunum í meistaraflokki kvenna en í kvöld kemur HK í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 19:30. Þetta er í annað sinn á fáum dögum sem að liðin mætast en á dögunum unnu Haukastelpur leik liðanna í Coca-Cola bikarnum. Liðin eru í harðri baráttu í deildinni og skiptir […]

Hafnarfjarðarslagur í Grill 66 deildinni

Það verður boðið upp á Hafnarfjarðarslag í Schenkerhöllinni í kvöld þegar að U-lið Hauka fær nágranna sína í FH U í heimsókn. Leikurinn hefst kl. 19.30 og er Haukafólk hvatt til þess að mæta og sjá ungu Haukastrákana spila en þeir eru að gera flotta hluti Grill 66 deildinni og eru þeir í um miðja […]

Olísdeild karla: Haukar – Fram

Eftir stutt hlé er loksins komið að næstu leikjum í handboltanum. Fjörið heldur áfram á sunnudag þegar að Fram kemur í heimsókn í Olísdeild karla. Leikurinn hefst kl. 16:00 í Schenkerhöllinni og er frítt inn fyrir þá sem kaupa miðann sinn með Síminn Pay appinu og fylgir pizzasneið og gos með miðanum. Appið er einfalt og […]