Búið að draga í undanúr­slit­um Coca Cola bik­ars­ins

Í hádeginu í dag var dregið í undanúrslitum í Coca Cola bikarnum. Stelpurnar mæta Val og strákarnir ÍBV. Leikirnir fara fram í Laugadalshöll. Stelpurnar spila fimmtuaginn 26. febrúar og strákarnir daginn eftir. Úrslitaleikirnir fara svo fram laugardaginn 28. febrúar. Við munum að sjálfsögðu fjölmenna í Höllina og styðja okkar lið til sigurs. Þetta er annað […]

Haukar – ÍR í kvöld kl. 19:30

Haukarnir taka á móti ÍR í kvöld, mánudaginn 16. febrúar, kl. 19:30 í Olís deild karla. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið þar sem styttist óðfluga í úrslitakeppnina. ÍR situr í þriðja sæti Olís deildar með 25 stig en Haukar sitja í 7 sæti með 16 og geta með sigri komist í 5 sætið. […]

Kveðja frá formanni handknattleiksdeildar

Þessa dagana eru tímamót í mínum huga hjá okkur í handboltanum, bæði karla  – og kvennaliðið okkar hafa tryggt sér farseðil í Höllina í Final 4 í Coka Cola bikarnum og verður því tvöföld bikarskemmtun hjá okkur dagana 26. – 28. febrúar n.k,  Haukadagar í Höllinni.  Við munum gera allt til að gera þessa daga […]

Haukar – HK í kvöld kl. 19:30 í Schenkerhöllinni.

Haukar munu taka á móti HK í kvöld, fimmtudaginni 12. febrúar, í Olís deild karla og hefst leikurinn kl. 19:30. Haukarnir byrjuðu sterkt eftir hið langa landsleikjahlé og lögðu Eyjamenn á erfiðum útivelli. Strákarnir spiluðu nokkuð vel og var liðsheildin sterk. Með sigrinum náðu strákarnir að komast nær efri hlutanum og því er leikurinn í […]

Stórleikur í Coca Cola bikar kvenna, Haukar – Selfoss.

Á morgun, þriðjudag, taka stelpurnar okkar í handboltanum á móti liði Selfoss í Coca Cola bikarnum. Leikurinn hefst kl. 19:30 í Schenkerhöllinni. Það lið sem sigrar tryggir sér þátttöku í Final 4 í Höllinni í lok mánaðarins. Strákarnir hafa þegar tryggt sér þátttökurétt og nú er komið að stelpunum. Þeir sem komast ekki á leikinn […]

Haukar – KA/Þór laugardaginn 7. febrúar kl. 16:00

Meistaraflokkur Kvenna í handboltanum tekur á móti KA/Þór á Laugardag kl 16:00 Haukastelpur hafa verið á flottu flugi síðustu mánuði og eru nú í 4-5 sæti ásamt ÍBV og nálgast toppliðin.  Næsta viðureign stelpnanna verður við KA/þór í Schenker Höllinni.  Síðast þegar liðin áttust við hittu okkar stelpur vægast sagt á slæmann dag og töpuðu […]

Haukar – Grótta í Olísdeild kvenna á morgun

Haukar, sem unnið hafa síðustu fimm leiki sína, taka á morgun að móti toppliði Gróttu og hefst leikurinn kl. 19:30. Grótta er sem stendur í efsta sæti deildarinnar með 24 stig en Haukar sækja nú ört á toppliðin og eru með 16 stig í fimmta sæti. Liðin áttust við á Seltjarnarnesi í byrjun nóvember og […]

Haukar – Fylkir kl. 14:00 á morgun í Schenkerhöllinni

Á morgun, laugardag, heimasækja Fylkisstúlkur okkar konur í Schenkerhöllina og hefst leikurinn kl. 14:00. Fylkir er í 7. sæti deildarinnar en Haukar eru sem stendur í því 5. og hafa unnið alla sýna leiki eftir áramót. Haukarstelpur hittu ekki á góðan  dag þegar liðin mættust 23. september s.l. en þá töpuðu þær með 5 marka […]

U15 ára landslið kvenna spilar um helgina og Haukar eiga 5 fulltrúa

Um helgina munu stelpurnar í U15 ára landsliði Íslands spila tvo æfingaleiki við Skota. Haukar eiga 5 fulltrúa í liðinu en það eru þær: Alexandra Jóhannsdóttir, Alexandra Líf Arnardóttir, Berta Rut Harðardóttir, Katrín Hanna Hauksdóttir og Wiktoría Elzbieta Piekarska. Tvær af þessum ungu afrekskonum eru líka í landsliðsúrtaki hjá KSÍ en það eru þær Alexandra […]