Myndir frá leik Hauka og Pler KC í dag

Haukar og ungverska liðið Pler KC skildu jöfn í fyrri leik liðanna í 3. umferð Evrópukeppni félagsliða sem var að ljúka að Ásvöllum. Spennan magnast því fyrir seinni leikinn á morgun kl. 18 . Einar Örn Jónsson skoraði jöfnunarmarkið á síðustu sekúndu leiksins og lokaúrslit 26-26. Haukar höfðu á brattan að sækja allan leikinn og voru undir […]

Stefnir í hörkuleik

Þegar þessar línur eru ritaðar er rúm klukkustund í Evrópuleik Hauka og Pler KC , leikmenn liðanna eru komnir í hús og ljóst hvernig liðin verða skipuð. Ungverjanir mæta með 13 leikmenn. Sterkasti leikmaður liðsins er Peter Lendvay, leikmaður nr. 11, sem leikur bæði á miðju og sem vinstri skytta. Hann var markahæstur í leik liðsins gegn Pick Szeged í vikunni með 8 […]

Lagt inn í reynslubankann

Björgvin Hólmgeirsson og Guðmundur Árni Ólafsson gengu til liðs við Hauka fyrir þetta tímabil auk þess sem Jónatan Jónsson snéri aftur heim. Þessir leikmenn eru að stíga sín fyrstu skref í Evrópukeppninni og leggja því duglega inn í reynslubankann þetta haust þegar hver stórleikurinn rekur annan. Björgvin átti mjög góðan leik gegn FH á dögunum og er […]

Stjörnustúlkur sóttar heim

Haukar og Stjarnan hafa oft eldað grátt silfur saman í handknattleik kvenna á undanförnum árum þegar barátta um helstu titla hefur verið annars vegar. Á morgun mætast liðin kl. 13:00 í Mýrinni í Garðabæ og er tilvalið að hefja handboltaskemmtunin þar áður en Evrópuleikur strákanna hefst að Ásvöllum kl. 16:00. Fyrir leikinn á morgun eru […]

Ferill Hauka í Evrópukeppni í handknattleik

Á heimasíðu evrópska handknattleikssambandsins er hægt að skoða feril Hauka í Evrópukeppni. Þar má t.d. skoða hversu oft liðið hefur tekið þátt í Evrópukeppni, skoða gömul úrslit auk þess sem hægt er að fá tölfræði um mörk leikmanna o.fl. Að sjálfsögðu er sömuleiðis hægt að afla upplýsinga um andstæðinga Hauka og önnur lið í keppninni. […]

Evrópuhelgin að bresta á

Ungverska handknattleiksliðið Pler KC, sem leikur tvo leiki gegn Haukum í Evrópukeppni félagsliða um helgina, kemur til landsins í dag. Liðið tapaði einungis með einu marki gegn Pick Szeged, toppliði ungversku deildarinnar, fyrr í vikunni og voru óheppnir að ná ekki jafntefli miðað við gang leiksins. Það segir sitt um styrk liðsins þótt nokkur titringur hafi […]

Haukar – PLER KC

  HAUKAR – PLER KC 3. umferð Evrópukeppni félagsliða 2009-2010 Fyrri leikur: laugardaginn 14. nóvember kl. 16:00Seinni leikur: sunnudaginn 15. nóvember kl. 18:00 Báðir leikir fara fram í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum ALLIR Á VÖLLINN! Miðaverð 1500 kr. ef keyptir eru miðar á báða leikinaAlmennt verð 1.000 kr.Frítt inn fyrir 15 ára og yngri

Handboltaveisla um helgina

Meistaraflokkur karla þarf að ná sér hratt niður á jörðina eftir góðan sigur á FH um síðustu helgi þvi um helgina mæta þeir sterkur ungversku liði, Pler KC, í tvígang. Báðir leikirnir fara fram á Ásvöllum, sá fyrri kl. 16:00 á laugardag og síðari leikurinn kl. 18:00 á sunnudag. Hægt verður að kaupa miða á […]

Sigur og tap hjá Haukum í dag

Það var boðið upp á sannkallaða handboltaveislu á Ásvöllum í dag þegar bæði kvenna og karlalið Hauka spiluðu í N1-deildinni. Kvennaliðið varð að sætta sig við þriggja marka tap gegn Fram 27-24 en karlaliðið bjargaði deginum og gott betur en það og sigraði FH 29-26.   Í kvennaleiknum byrjaði Haukar betur og var liðið með […]