Haukastelpur úr leik með sæmd

Meistaraflokkur kvenna féll úr leik í úrslitakeppni N1 deildar kvenna í dag eftir tvíframlengdan leik gegn deildarmeisturum Vals. Stelpurnar sýndu mikinn karakter og börðust allan tímann en urðu að láta í minni pokann að lokum. Nánari umfjöllun um leikinn verður sett inn á síðuna síðar auk fleiri mynda.

2.flokkur karla leikur til úrslita á morgun

Eftir frækin sigur á Fimleikafélaginu í dag, í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í 2.flokki karla munu Haukar mæta Akureyringum í úrslitaleiknum á morgun. Leikurinn fer fram í Strandgötu og hefst leikurinn kl. 14:00. Stemmingin í Strandgötunni í dag var frábær og var nánast fullt hús.  Haukar sigruðu leikinn með einu marki 26-25 eftir að hafa verið […]

Tveir Haukamenn í u-18 ára landslið karla

Tveir af okkar efnilegu ungu handboltamönnum voru valdir í úrtakshóp hjá U-18 ára landsliði Íslands. Það eru þeir Brynjólfur Brynjólfsson og Arnar Daði Arnarsson. Við óskum þessum ungu leikmönnnum til hamingju með þetta og vitum að þeir eiga eftir að vera Haukum til mikils sóma. Til hamingju strákar.  Eftirtalinn hópur var valinn:  Markmenn:Arnar Sveinsson, HK […]

Fjórir frá Haukum í U-20 ára landsliðinu

Einar Guðmundsson og Einar Andri Einarsson þjálfarar U-20 ára landsliðs karla hafa tilkynnt 16 manna leikmannahóp sem tekur þátt í undankeppni Evrópumótsins en undanriðilinn sem Ísland leikur í er leikinn á Íslandi um næstu helgi. Í hópnum eru fjórir frá Haukum, þeir Heimir Óli Heimsson, Stefán Rafn Sigurmannsson, Guðmundur Árni Ólafsson og Tjörvi Þorgeirsson. Haukar […]

Fimm Haukarar í A-landsliði karla

Í dag var tilkynntur 17 manna hópur A-landsliðs karla sem mætir Frökkum í tveimur vináttulandsleikjum sem fram fara í Laugardalshöllinni um næstu helgi. Í liðinu er hvorki fleiri né færri en fimm Haukarar þar af tveir sem spila með Haukum í N1-deildinni í ár.  Um er að ræða stórskyttuna Sigurberg Sveinsson og hinsvegar eina nýliðann […]

Tap í fyrsta leik gegn Val í undanúrslitum

Kvennalið Hauka lék gegn Val í kvöld í Vodafonehöllinni í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Í hinni viðureigninni sigruðu Fram stúlkur lið Stjörnunnar. Valstúlkur höfðu betur í kvöld með fimm mörkum 28-23 eftir að Haukar höfðu verið yfir í hálfleik með einu marki, 12-11. Markahæst í liði Hauka var Hanna Guðrún Stefánsdóttir með […]

Undanúrslit hjá 2.flokki á morgun, Haukar – FH

Eftir öruggan sigur á Stjörnunni 37-30 í 8-liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í 2.flokki karla er komið að undanúrslitunum og úrslitunum. Við erum að tala um RISAleik í undanúrslitum því Haukar og FH mætast þar í Strandgötunni klukkan 12:00 næstkomandi laugardag. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast síðan Akureyri og ÍR. Sá leikur hefst klukkan 14:00. Við hvetjum […]

Tap í síðasta leik deildarinnar gegn Akureyri

Haukar og Akureyri mættust í lokaumferð N1-deildar karla í handknattleik í kvöld að Ásvöllum. Haukar voru þegar búnir að tryggja sér Deildarmeistaratitlinn fyrir nokkrum umferðum en Akureyri voru í harðri baráttu um að tryggja sér sæti í 4-liða úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn. Þeir þurftu nauðsynlega á sigri að halda þ.e.a.s ef FH myndi sigra HK á […]

Öruggur Haukasigur á Stjörnunni

Haukar og Stjarnan mættust í næstu síðustu umferð N1-deildar karla í ár, á Ásvöllum. Haukar voru þegar orðnir Deildarmeistarar en Stjarnan er í harðri fallbaráttu.  Haukar byrjuðu betur og komust fljótlega yfir og eftir fimm mínútna leik voru Haukar komnir 4-1 yfir með mörkum frá Sigurbergi og Einari Erni. Gestirnir voru hinsvegar fljótir að jafna […]