KFUM félögin kljást um Íslandsmeistaratitilinn

Eftir sigur Vals á Akureyri í framlengdum þriðja leik liðanna í undanúrslitum N1 deildar karla liggur fyrir að Haukar og Valur mætast í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Þetta er annað árið í röð sem þessi KFUM félög takast á um titilinn en í fyrra lauk viðureigninni með 3-1 sigri Hauka þar sem Haukastrákarnir fögnuðu í Vodafone-höllinni. […]

Haukar – HK leikur 2 kl. 16:00 í dag – Viðtal við Aron Rafn

Seinna í dag eða kl. 16:00 í Digranesi er annar undanúrslitaleikur milli Hauka og HK að þessu tilefni heyrði Haukasíðan í nýjasta A-landsliðsmanni Hauka en það er markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson. Aron er tvítugur gríðlega stór markmaður sem er ennþá í 2. flokki sem eru komnir í úrslit Íslandsmótsins en nánar um það síðar því […]

HK – Haukar kl. 16 í dag í Digranesi

Haukar geta tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn með sigri á HK í Digranesi kl. 16 í dag. Ljóst er að leikurinn verður erfiður enda gengi Hauka æði misjafnt í gegnum tíðina í Digranesinu. Í vetur hafa Haukar tvívegis mátt bíða lægri hlut gegn HK á þessum velli. Strákarnir treysta á dyggan stuðning alls Haukafólks […]

Naumur sigur í fyrsta leik úrslitakeppninnar

Haukar unnu nauman sigur á HK í fyrstu viðureign liðanna í fjögurra liða úrslitum N1 deildar karla. Lokastölur 22-20 fyrir Hauka og staðan í einvíginu 1-0. Næsti leikur fer fram í Digranesinu á laugardaginn kl. 16:00. Elías Már Halldórsson gulltryggði sigur Hauka með lokamarkinu u.þ.b. 15 sekúndum fyrir leikslok. Áður hafði Sigurbergur Sveinsson skorað 21. […]

Nýtt mót hefst í kvöld – allir á Ásvelli

Hátíð allra handboltaunnenda hefst í dag þegar úrslitakeppnin fer af stað. Haukar mæta til keppni sem nýkrýndir deildarmeistarar sem tryggir þeim heimaleikjaréttindi gagnvart öllum öðrum þátttakendum en að öllu öðru leyti er um algjörlega nýtt mót að ræða. Dagsformið skiptir sköpum um árangur liða í úrslitakeppninni eins og reynslan sýnir. Því ríður á að mæta […]

Sigurbergur í úrvalsliði þriðju umferðar N1 deildarinnar

Sigurbergur Sveinsson er í úrvalsliði þriðju umferðar N1 deildar karla en tilkynnt var um valið í gær. Magnús Gunnar Erlendsson, markvörður Fram, var valinn besti maður þriðju umferðarinnar. Aðrir leikmenn voru Oddur Grétarsson, vinstri hornamaður Akureyrar, Fannar Þór Friðgeirsson, miðjumaður úr Val, Arnar Þór Gunnarsson, hægri skytta úr Val og Bjarni Fritzson, hægri horn úr FH. […]

Tímamótasamningar við unga lykilleikmenn í liði Íslandsmeistara Hauka

Skrifað hefur verið undir þriggja ára samninga á milli handknattleiksdeildar Hauka og marga efnislegustu leikmanna m.fl. karla. Þetta eru Aron Rafn Eðvarðsson, markvörður, Heimir Óli Heimisson, línumaður, Sigurður Guðjónsson, línumaður, Stefán Huldar Stefánsson, markvörður, Stefán Ragn Sigurmannsson, hornamaður, Tjörvi Þorgeirsson, miðjumaður og Þórður Rafn Guðmundsson, vinstri skytta auk þess sem gengið var frá samningi við […]

Tvær Haukastúlkur u-20 ára landslið kvenna

Valið hefur verið u-20 ára landsliðs kvenna sem tekur þátt í undankeppni fyrir EM sem fram fer helgina 21.-23. maí í Rúmeníu en liðið er þar í riðli ásamt Rúmeníu, Frakklandi og Króatíu. Það eru þær Erla Eiríksdóttir og Heiða Ingólfsdóttir. Við óskum Erlu og Heiðu til hamingju með það og óskir um gott gengi. […]