Það var gríðarleg stemmning á þriðja leik Hauka og Vals á Ásvöllum þar sem Haukar fóru með öruggan sigur af hólmi. Pétur Haraldsson var mættur til að taka myndir og má skoða þær með því að velja „lesa meira“ hér að neðan.
Það var gríðarleg stemmning á þriðja leik Hauka og Vals á Ásvöllum þar sem Haukar fóru með öruggan sigur af hólmi. Pétur Haraldsson var mættur til að taka myndir og má skoða þær með því að velja „lesa meira“ hér að neðan.
Hátíðardagurinn er runninn upp! Oddaleikur Hauka og Vals fer fram í dag kl. 14:00. Íslands-, bikar- og deildarmeistarar Hauka tóku daginn snemma og hittust í morgunmat hjá formanni handknattleiksdeildar. Strákarnir voru vel stemmdir og horfðu saman á stemmningsmyndbandið sem var útbúið sérstaklega í tilefni dagsins. Miðasala er hafin á Ásvöllum og um að gera að […]
Það er búist við miklum fjölda á oddaleik Hauka og Vals um Íslandsmeistaratitilinn sem fer fram kl. 14 á laugardaginn á Ásvöllum. Forsala miða hefst á Ásvöllum kl. 10:00. Áhorfendum verður hleypt inn í sal kl. 13 þar sem Júlli diskó sér um músíkina. Sjoppan opnar kl. 12 og andlitsmáling verður í boði fyrir krakkana. Við hvetjum […]
Handknattleiksdeild Hauka og Einar Jónsson hafa náð samkomulagi um að Einar taki við þjálfun meistaraflokks kvenna hjá Haukum. Samningurinn er til þriggja ára. Einar Jónsson er öllum hnútum kunnugur hjá félaginu enda bæði verið þjálfari og leikmaður hjá Haukum í gegnum tíðina. Einar hefur víðtæka reynslu af þjálfun og er vel til þess fallinn að […]
Handhafar aðgönguskírteina HSÍ (A og B aðgönguskírteini) sem ætla á oddaleik Haukar og Vals um Íslandsmeistaratitil N1 deildar karla eiga að nálgast miða á leikinn á morgun, laugardag, milli kl.10.00 – 12.00 á Ásvöllum. Ekki er hægt að framvísa skírteini við innganginn. Miðar verða eingöngu afhendir gegn framvísun skírteinis og skilríkja. Leikurinn fer fram á […]
Draumur allra handboltaunnenda hefur ræst. Úrslit Íslandsmótsins munu ráðast í oddaleik tveggja bestu liða landsins. Það eru forréttindi fyrir leikmenn beggja liða að fá að upplifa þessa stund. Það er ekkert skemmtilegra en að sigra í oddaleik eftir langan og strangan vetur. Það veit sá sem ritar þessar línur. Tækifæri sem þessi bjóðast fáum og […]
Verða strákarnir meistarar í kvöld ? leikur # 4 klukkan 19:30 í kvöld Vodafonehöllin að Hlíðarenda !!! Hersveitarmenn mæta og ætla að hita upp á Ásvöllum klukkan 17:30 og þangað eru allir velkomnir. Við hvetjum Haukafólk til að mæta tímalega í Vodafonehöllina og taka vel undir með Hersveitarmönnum á pöllunum ÁFRAM HAUKAR
Skilaboð frá Herði Davíð liðstjóra: JENS VERÐUR Í HÚSINU Í KVÖLD.
Haukar geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik með sigri að Hlíðarenda í kvöld en leikurinn hefst kl. 19:30. Stórkostleg stemmning var á síðasta leik og má búast við fullu húsi að Hlíðarenda. Haukar fögnuðu titlinum á fjölum sama húss fyrir ári síðan þegar liðið vann Val 3-1 í úrslitaeinvíginu. Haukar hafa því tækifæri á að […]
Einstök stemmning var á Ásvöllum á þriðjudagskvöldið þegar Haukar tóku á móti Val í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitil N1 deildar karla. Stuðningur áhorfenda var hreint út sagt stórkostlegur og eiga stuðningsmenn beggja liða bestu þakkir fyrir að skapa umgjörð af þessu tagi um þetta úrslitaeinvígi. Það er vegna upplifana á borð við […]