Ragnheiður komin heim

Línumaðurinn Ragnheiður Sveinsdóttir hefur gert samning við Hkd. Hauka um að leika með félaginu næstu 2 árin. Ragnheiður sem er 28 ára kemur til liðs við Hauka frá Val þar sem hún hefur leikið síðustu 2 og hálft ár en fram að því hafði hún leikið allan sinn feril með Haukum.

Ragnheiður lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Hauka haustið 2010 þá 16 ára og stækkaði hlutverk hennar jafnt og þétt. Ragnheiður var svo orðin ein af lykilleikmönnum liðsins sem vann deildarmeistaratitilinn árið 2016.

Það er því ánægjuefni að fá Ragnheiði heim á Ásvelli og verður gaman að sjá hana í Haukabúningnum á ný í haust. Áfram Haukar!