Skákdeild Hauka úr leik.

Sveit Taflfélags Vestmannaeyja vann sigur á b-sveit Skákdeildar Haukar í 1. umferð (16 liða úrslitum) Bikarkeppni TG. Lokatölur urðu 10-2 en staðan í hálfleik var 6-0. Hellismenn lögðu hins vegar a-sveit Hauka að velli 9-3 en staðan í hálfleik 4½-1½. Báðar viðureignirnar fóru fram á Ásvöllum á fimmtudagskvöldið. Einstaklingsúrslit urðu sem hér segir: Skákdeild Hauka […]

Skákdeild Hauka í öðru sæti!!!

Skákdeild Hauka varð í öðru sæti í Íslandsmótinu í hraðskák. Íslandsmeistarar Hróksins unnu sigur á Skákdeild Hróka í úrslitum hraðskákkeppni taflfélaga en lokatölur urðu 55½-16½ en staðan í hálfleik var 27-9. Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson stóðu sig best Hróksverkja en Ásgeir P. Ásbjörnsson best Haukamanna. Hróksmenn unnu 6-0 í fyrstu umferð en töpuðu reyndar […]

Skákdeild Hauka-Hrókurinn í kvöld.

Ég læt hér fylgja með umfjöllun um viðureignina sem er á skak.is Úrslitaviðureign Hauka og Hróksins Fjórðudeildarmeistarar Skákdeildar Hauka og Íslandsmeistarar Hróksins mætast í úrslitum Hraðskákkeppni taflfélaga þriðjudaginn 7. september. Viðureignin fer fram á heimavelli Hauka á Ásvöllum og hefst kl. 20:00. Það er Taflfélagið Hellir sem stendur fyrir mótshaldinu og er þetta í níunda […]

Skákdeild Hauka fær liðstyrk.

Skákdeild Hauka hefur fengið liðstyrk. Þetta eru Alþjóðlegi meistarinn Björn Ahlander (2393) og hinn íslenskættaði Reynir Helgason (2336). Skákdeild Hauka býður þessa heiðursmenn velkomna í Hauka.

Skákdeild Hauka opnar vef!!!

Þá er loksins komið að því að Skákdeild Hauka opnar vef. Það tekur nokkrun tíma að koma honum í það horf sem að hann á að vera í. Hér verður ýmistlegt til fróðleiks og skemmtunar. Fréttir af félögunum og ýmislegt annað. Þeir sem að hafa áhuga á að setja inn fréttir eða annað geta haft […]