Jólagleði á Miðbar

Minnum á jólagleðina sem haldin verður á Miðbar (við hliðina á Lansbankanum Laugarvegi 77) föstudagsköldið 17. desember kl. 19.00. 20 ára aldurstakmark. Fjölmennum! Nefndin

Skákæfing 14/12. 2004

Sigurbjörn Björnsson vann verðskuldaðan sigur á skákæfingunni í gærkveldi. Þátttaka var mjög góð eða 20 manns, sem er næstbesta mætingin í vetur! Eftir tap gegn undirrituðum í 2.umferð, setti Sigurbjörn í fluggírinn og lagði alla andstæðinga sína eftir það! Í upphafi æfingarinnar var undirrituðum falið það hlutverk að sjá um bókhaldið. Undirritaður var þó engan […]

Jólamót Hauka. Brynjar Ísak vann

Brynjar Ísak Arnarsson, afabarn Jóns Magnússonar Haukamanns með meiru sigraði á jólamóti barna og unglingastarfs Hauka. Veit voru þrenn verðlaun bæði fyrir stráka og stelpur. Aðalvinninginn á mótinu sem var 2,5 kílóa macintosh dolla vann hins vegar Agnes Linnet í happdrætti eftir mótið, en þá voru einnig nokkrir aukavinningar dregnir út. úrslit urðu annars eftirfarandi: […]

Síðasta barnaæfing fyrir jól

Síðasta barnaæfingin fyrir jól verður á morgun, þriðjudag kl. 17.15. Ath að vænst er þess að foreldrar taki þátt í æfingunni með krökkunum (bara á morgun) og þyggi einnig veitingar. Ath einnig að æfingin verður haldin uppi á palli á morgun því salurinn er upptekinn. (aðalinngangur og upp tröppurnar)

Skákæfing 7.desember.

Heimir og Þorvarður urðu efstir og jafnir á skákæfingunni síðastliðið þriðjudagskvöld. Þátttakendur voru 14. Þar sem Heimir bar sigurorð af Þorvarði í innbyrðisviðureign þeirra, mætti svo sem færa rök fyrir því að hann yrði skrifaður á undan í lokastöðunni. Í ljósi mikilla yfirburða Heimis á æfingum í vetur, krafðist Þorvarður hins vegar þess að varpa […]

2 Barnaæfingar eftir fyrir jól

Á æfingu 7. des verður haldið jólamót Hauka og verða veit verðlaun fyrir efstu sæti auk þess sem vinningar verða dregnir út. Á æfingu 14 des sem er síðasta æfingin fyrir jól og áramót verður haldin æfing þar sem foreldrum er boðið að vera með á æfingu og taka þátt í skákinni og fylgjast með […]

Barnaæfing 23. nóvember

Á æfingunni var síðasti undirbúningur undir íslandsmót unglingasveita og var farið í liðakeppni. Þarna mættust 2 lið þe. liðið Snillingarnir og síðan harðskeytt lið FH sem virðast vera nokkrir innan skákdeildarinnar. Lið FH sem fór ekki vel út úr síðustu liðakeppni gegn Chelsea ákvað að við svo búið mátti ekki standa og hreinlega ruslaði upp […]

Haukar á Íslandsmóti unglingasveita

Báðar sveitir Haukana stóðu sig með mikilli prýði á íslandsmóti unglingasveita um síðustu helgi. Mótið var fyrir einstaklinga sem voru fædd ’89 og yngri og endaði A sveitin í 7-11 sæti með 14,5 vinninga eftir að hafa fengið allar erfiðustu sveitirnar. Aðeins einn vinningur í viðbót hefði gefið 4 sæti þannig að keppnin var mjög […]

Skákæfing 30.nóvember.

Sigurbjörn Björnsson kom, sá, og hreinsaði á skákæfingunni á þriðjudaginn var. Þátttaka var nokkuð góð, 19 manns létu sjá sig. Lokastaðan varð eftirfarandi: 1. Sigurbjörn Björnsson 18v. af 18! 2. Stefán Freyr 15 3-4. Jón Magnússon Þorvarður Fannar 14,5 5. Sigurður P. Guðjónsson 12,5 6-7. Sverrir Þorgeirsson Auðbergur Magnússon 11,5 8. Stefán Pétursson 10 9. […]

2 sveitir Íslandsmót Unglingasveita

Amk. 2 sveitir verða frá Haukum í Íslandsmót Unglingasveita sem haldið verður næsta laugardag kl. 13 í Faxafeni 12 í Reykjavík. Ekki liggur fyrir endanleg borðaröð í B sveit Hauka en A sveitin eru skipuð þeim Sverri, Kristjáni, Geir og Herbert. B sveitin verður skipuð þeim Hans Adolf og Agnesi Linnet ásamt fl. Enn er […]