Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins.

Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og félagsstarf og aðstaða okkar hér á Ásvöllum er ein sú glæsilegasta á landinu.  Það sýnir sig líka þessar vikurnar þar sem íþróttafólkið okkar leikur í úrslitaviðureignum í handbolta og körfubolta.  Aðrar deildir félagsins standa styrkum fótum og eflast með hverju ári.  Þá er tilkoma Knatthúss Hauka, eins glæsilegasta knatthúss landsins,  gríðarleg lyftistöng fyrir allt starf knattspyrnudeildar.

Íþróttamiðstöð Hauka  á Ásvöllum iðar af lífi frá morgni til kvölds og samhliða því að fagna þessum merka áfanga í sögu félagsins er rétt að geta þess að kvennalandslið Íslands í handknattleik leikur mikilvægan leik við landslið Portúgal kl. 16:00  hér á Ásvöllum.

Kæru Haukafélagar, kæru Hafnfirðingar, fögnum á afmælisdegi þróttmiklu  íþróttastarfi Knattspyrnufélagsins Hauka.   Framtíðin er björt.

Áfram Haukar!

Magnús Gunnarsson,

Formaður Knattspyrnufélagsins Hauka.