Öldungaráð Hauka er hópur eldri félaga Hauka, 60 ára og eldri, sem kemur saman til að njóta lífsins á einn eða annan hátt. Á vetrum er m.a. spila- og skemmtikvöld í Haukahúsinu og á sumrin er farið í ferðalög innanlands sem utan. Gefið er út fréttabréf sem sent er öllum starfandi "öldungum".
Dagskrá fyrir vetrarstarfið 2008 - 2009 er með hefðbundum hætti. Það er að spilað verði í forsalnum á Ásvöllum síðasta miðvikudag í hverjum mánuði.
Þá eru einnig boltaæfingar fyrir alla eldri Haukafélaga á vegum almenningsdeildar. Umsjón með æfingum er í höndum Kristjáns Ómars Björnssonar.
Í sögu Hafnarfjarðar, sem Sigurður Skúlason, magister skrifaði, og kom út árið 1932, er minnst á öll þau íþróttafélög sem höfðu starfað og voru starfandi í bænum á þeim tíma. Þar á meðal eru Haukar nefndir til sögunnar sem yngsta íþróttafélagið í bænum. Fimleikafélag Hafnarfjarðar er ekki nefnt á nafn í þessari samantekt sem vekur upp spurningar hvort Haukar séu ekki í raun réttri elsta starfandi íþróttafélag í Hafnarfirði. |