Penninn á lofti á Ásvöllum

leikmenn kkd 2017Kkd. Hauka gekk til undirskrifta í dag þegar samningar við leikmenn liðsins voru undirritaðir. Þá gekk deildin einnig frá samningi um þjálfun liðsins sem og styrktarþjálfun. Haukar enduðu í 10. sæti Domino‘s deildarinnar á yfirstandandi leiktíð og voru það töluverð vonbrigði þar sem liðið ætlaði sér mun stærri hluti. Það er því ljóst að allir ætla sér að gera betur á næstu leiktíð og var fyrsta skrefið að ná samningum við þann kjarna sem Haukar hafa haft undanfarin ár.

Mynd 1: Efri röð f.v.: Hjálm­ar Stef­áns­son, Stein­ar Arons­son, Hauk­ur Óskars­son, Jón Ólaf­ur Magnús­son, Hilm­ar Smári Henn­ings­son, Alex Rafn Guðlaugs­son og Jón­as Jón­munds­son, formaður kkd. Hauka. Neðri f. v.: Óskar Már Óskars­son, Ívar Bar­ja, Kristján Leif­ur Sverris­son og Björn Ágúst Jóns­son

 

Ívar Ásgrivar samningurímsson verður áfram þjálfari liðsins og honum til aðstoðar verður Vilhjálmur Skúli Steinarsson. Vilhjálmur mun einnig sjá um styrktarþjálfun liðsins en hann er mentaður í þeim fræðum og starfaði um árabil í Stavanger, Noregi, sem íþróttastjóri við afreksskóla á framhaldsskólastigi sem og á sjúkraþjálfarastöðinni Stavanger Idrettsklinikk.

Þá framlengdu Haukur Óskarsson, Hjálmar Stefánsson, Kristján Leifur Sverrisson og Breki Gylfason sína samninga til tveggja ára en aðrir leikmenn til eins árs. Samningar, sem gerðir voru í fyrra, við Emil Barja og Finn Atla Magnússon voru til tveggja ára og eiga þeir því ár eftir af sínum samning.

Einnig verður stefnt að því að styrkja liðið með innlendum liðsafla og er stefna Hauka að berjast um alla titla sem í boði eru á komandi árum.

 

 

Meistaraflokksráð kkd. Hauka.villi