Æfingagjöld handknattleikur

Æfingagjöld tímabilið 2025-2026

Komið er nýtt skráningar forrit fyrir allt félagið sem heitir Sportabler. Allar skráningar fara því fram þar og kemur Frístundastyrkurinn sjálfkarafa inn þegar hann er valinn. Skráningar fara því fram í gegnum slóðin https://www.sportabler.com/shop/haukar/handbolti.

Niðurgreiðsla frá Hafnarfjarðarbæ fyrir 6-18.ára er kr. 4.750 kr á mánuði. Heildarupphæð sem niðurgreiðsla nemur dregst frá heildarupphæð æfingagjalda. Muna að „haka við“ nýta frístundastyrk ef nota á frístundastyrkinn upp í gjaldið. Það er því mikilvægt að skrá sig sem fyrst inná niðurgreiðsluna hjá Hafnarfjarðarbæ svo niðurgreiðslur hefjist strax.

Niðurgreiðsla fyrir 5.ára fá hálfan styrk, 28.500 kr á ári eða 2375kr frá og með 15.ágúst.

ATH. Árið sem iðkandi verður fimm ára getur það byrjað að fá styrk 1. janúar og hættir að fá styrk 31. desember árið sem það verður 18 ára.

Innifalið í æfingagjöldum í ár er rauði Haukabúningurinn og handbolti frá Puma. Nánari upplýsingar varðandi mátun, pöntun og afhendingu kemur síðar.

9.flokkur (2020 og 2021) = 37.000 Árgjald (9 mánaða tímabil)

8.flokkur (2018 og 2019) = 85.000 Árgjald (9 mánaða tímabil)

7. flokkur (2016-2017) = 106.000 Árgjald (9 mánaða tímabil)

6. flokkur (2014-2015) = 130.000  Árgjald (12 mánaða tímabil)

5. flokkur (2012-2013) = 142.000  Árgjald (12 mánaða tímabil)

4. flokkur (2010-2011) = 148.000  Árgjald (12 mánaða tímabil)

3. flokkur (2007-2009) = 148.000 Árgjald (12 mánaða tímabil)

U-lið (2004 og eldri) = 88.000 Árgjald     Hér er enginn niðurgreiðsla.(12 mánaða tímabil)

Greidd æfingagjöld fást ekki endurgreidd nema í sérstökum tilvikum, t.a.m. ef um er að ræða veikindi eða slys hjá iðkanda. Frístundastyrkur fæst ekki endurgreiddur ef iðkandi hættir hjá félaginu. Ef iðkandi hættir að sækja æfingar ber forráðamanni að senda tölvupóst á aronrafn@haukar.is. Tilkynning til þjálfara nægir ekki. Systkinaafsláttur er veitur milli deilda með þeim hætti að fjórða ódýrasta iðkun fjölskyldu innan félagsins er frí. Þannig greiðir hver fjölskylda í mesta lagi fyrir þrjár iðkanir í yngri flokka starfi félagsins. Ef þú hefur rétt á systkinaafslætti fyrir þitt barn þá þarf að hafa sambandi við aronrafn@haukar.is.
Hlökkum til samstarfsins,
starfsfólk og þjálfarar Hauka.