Um helgina fer fram fyrri úrslitahelgi yngri flokka. Frá 2. flokki og niður í 4. flokk er leikið í 8 liða úrslitum á heimavelli þess liðs sem hafnar ofar í deildinni, 1. sætið leikur gegn 8. sætinu, 2. sætið gegn 7. sætinu, 3. sætið gegn 6. sætinu og 4. sætið gegn 5. sætinu. Það lið sem sigrar í 8 liða úrslitaleiknum leikur í undanúrslitum á laugardegi og um 1. eða 3. sæti á sunnudegi annað hvort þessa helgina eða aðra helgi. Um þessa helgi fara fram úrslit 4. flokks kvenna A og B liða og unglingaflokks karla.
Strákarnir í unglingaflokki karla unnu sér sæti í undanúrslitum í gær. Þá sigruðu þeir lið KA og leika þeir undanúrslitaleik klukkan 19:00 á morgun, laugardag, í Austurbergi. Sigri þeir leikinn spila þeir til úrslita klukkan 20:00 á sunnudagskvöld en tapi þeir spila þeir um 3. sæti klukkan 18:00 á sunnudaginn.
Stelpurnar í A liðinu í 4. flokki kvenna eru komnar í undanúrslit eftir að hafa sigrað KA fyrir norðan í gær í hörkuleik. Þær leika klukkan 14:00 á morgun, laugardag, í Austurbergi. Sigri þær leika þær til úrslita á sunnudaginn klukkan 14:00 en tapi þær leika þær um 3. sætið klukkan 12:40 á sunnudaginn.
Stelpurnar í B liðinu í 4. flokki kvenna léku í dag tvo leiki, fyrst í 8 liða úrslitum gegn FH og sigruðu þær þann leik örugglega. Þar sem nokkrar af stelpunum eru að fermast á morgun var brugðið á það ráð að leika undanúrslitaleikinn í Mýrinni í kvöld og lék liðið gegn ÍBV. Þar töpuðu stelpurnar okkar og leika því um 3. sætið á sunnudaginn klukkan 10:00 í Austurbergi.
4. flokks karla liðin leika svo í næstu viku, A liðið fer á Selfoss og B liðið fær Þór Ak. í heimsókn. 2. flokkur karla leikur einnig í næstu viku en þá tekur liðið á móti ÍR. Nánari tímasetningar siðar.
Við hvetjum Haukafólk til að fjölmenna og horfa á og hvetja handboltafólk framtíðarinnar.
ÁFRAM HAUKAR!!