Valur-Haukar 2.leikur

Strákarnir okkar spiluðu frábæran leik og unnu verðskuldaðan og glæsilegan sigur 23-29 á Val í öðrum leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn.

Jafnræði var með liðunum í byrjun, Valur náði síðan 3ja marka forystu 6-3 en okkar menn eru ekki vanir að gefast upp og jöfnuðu fljótt 8-8. Aftur náði Valur 2ja marka forskoti og var staðan 13-11 í hálfleik.

Þegar strákanir okkar komu aftur til leiks var greinilegt að þeir höfðu notað leikhléið vel. Þeir skildu pirringinn og stressið eftir inní klefa og mættu með baráttuna og góða skapið til leiks og þvílík sýning sem þeir buðu uppá. Það var hrein og klár afgreiðsla. Þeir skelltu í lás í vörninni og með Birki Ívar fyrir aftan var allt lok lok og læs. Heimamenn gerðu ekki nema eitt mark á tæpum 15 fyrstu mínutum seinni hálfleiks. Það var ekki bara vörnin sem small heldur var sóknin fjölbreytt og frábær og náðu Haukarnir afgerandi forystu á þessum kafla 14-20.

Frábær og meiriháttar sigur og nú bíðum við spennt og full tilhlökkunar eftir fimmtudeginum.