Upplýsingapakki Arnars

Haukar – Fjölnir

Hvar er leikurinn ? Á Fjölnisvelli í Grafarvogi, nánar tiltekið Dalhúsum 2 , 112 Reykjavík

Hvenær er leikurinn ? Mánudaginn 13.ágúst, klukkan 18:30!

Haukar

Hvar eru Haukar staðsettir í 2.deildinni ?

Haukar eru í 1.sæti í annarri deildinni eftir 13 leiki. Eru með 29 stig af 39 mögulegum. Haukar eru enn taplausir á tímabilinu bæði í deild og bikar. Haukar hafa skorað 31 mörk og fengið á sig 12 mörk eða næst fæst í deildinni.

Hverjir eru markahæstu leikmenn Hauka í deildinni ?

Hilmar Rafn Emilsson er markahæstur en hann hefur skorað heil 10 mörk í 7 leikjum, en hann verður líklega fjarri góðu gamni í leiknum gegn Fjölni vegna meiðsla. Næstur honum kemur Ásgeir Þór Ingólfsson með 7 mörk í 10 leikjum.

Hvaða leikmaður Hauka ættu Fjölnir að varast mest ?

Fjölnir ættu að varast alla leikmenn Hauka í leiknum. Það hefur sést að þegar liðið er að spila bikarleiki eru þeir allir að spila til sigurs og gefa ekki tommu eftir.

Hver er að þjálfa Hauka ?

Þjálfari Hauka er Andri Marteinsson . Hann hefur verið að þjálfa yngri flokka Hauka undanfarin ár með góðum árangri. Hann tók við meistaraflokki Hauka eftir síðasta tímabil.

Hvaða lið hafa Haukar slegið út í bikarnum í ár ?

Haukar hófu bikarævintýrið í Borgarnesi með 5-0 sigri gegn Skallgrími, næsta fórnarlamb Hafnfirðinga voru svo ÓlafsVíkingar en Haukar sigruðu þá í vítaspyrnu nokkuð örugglega. Leiknir frá Reykjavík urðu næstir og fór sá leikur í framlengingu en Haukar fóru svo með sigur 3-1. Þá var komið að 16 – liða úrslitunum þegar Haukar sigruðu Framara í vítaspyrnukeppni, en þar fór Amir Mehica á kostum.

Hvað komust Haukar langt í bikarnum í fyrra ?

Haukar sigruðu Drang 5-0 en féllu svo úr leik gegn Fram 1-5 í fyrra.

Fjölnir;

Hvar eru Fjölnir staðsettir í 1.deildinni ?

Fjölnir eru í 3.sæti í fyrstu deildinni eftir 15 leiki. Þeir hafa hlotið 30 stig af 45 mögulegum. Þeir töpuðu síðasta leik í deildinni gegn Njarðvík ytra, 2-1 þann 22.júní. Þeir hafa skorað 43 mörk í deildinni og fengið á sig 19 mörk.

Hverjir eru markahæstu leikmenn Fjölnis í deildinni ?

Atli Viðar Björnsson og Gunnar Már Guðmundsson hafa báðir skorað 9 mörk á tímabilinu en Atli Viðar hefur einungis spilað 10 leiki. Á hælum þeirra er svo Tómas Leifsson næst þeim með 8 mörk. Semsagt mikið markalið hér á ferð.

Hvaða leikmaður Fjölnis ættu Haukar að varast mest ?

Gunnar Már Guðmundsson, en hann hefur átt glimrandi tímabil. Hann er stór og sterkur miðjumaður sem gefur ekki tommu eftir. Hann er algjör lykilmaður í Fjölnisliðinu. Hann er uppalinn Fjölnismaður og hefur aldrei spilað fyrir neitt annað félag en Fjölni.

Hver er að þjálfa Fjölni ?

Þjálfari Fjölnis er Ásmundur Arnarsson. Hann hefur meðal annars verið að þjálfa hjá Fram, Breiðablik og síðast Völsung áður en hann tók við liði Fjölnis árið 2005. Þetta er hans þriðja tímabil með félagið og árangur liðsins mjög góður. En á fyrsta tímabili Ásmundar lenti liðið í 4.sæti og í fyrra voru þeir ekki langt frá því að komast upp en þeir voru 3 stigum frá því að komast upp um deild.

Hvaða lið hafa Fjölnir slegið út í bikarnum í ár ?

Þeir byrjuðu að slá út 1.deildar lið Njarðvíkur 2-1, í næstu umferð sigruðu þeir 1.deildarlið Stjörnunar eftir að hafa lent eitt núll undir. Í 16 – liða úrslitum fór liðið svo austur og áttu kappi við enn eitt 1.deildarliðið Fjarðarbyggð og höfðu sigur í leiknum 4-3.

Hvað komust Fjölnir langt í bikarnum í fyrra ?

Fjölnir töpuðu gegn Fram 4-0, í fyrsta leik sínum í bikarnum.

Leikir liðanna í fyrra;

Laugardaginn 20.maí tóku Fjölnismenn á móti Haukum í 1.deildinni, leiknum lauk með 1-1 jafntefli eftir að Edilon Hreinsson hafi komið Haukum yfir á 13.mínútu. Það var svo fyrirliði Fjölnismanna Gunnar V. Gunnarsson sem jafnaði metinn á 69.mínútu með hörkuskoti.

Föstudaginn 21.júlí komu svo Fjölnismenn í heimsókn. Haukar fóru með sigur að hólmi. Það var “Bitinn” sjálfur Ómar Karl Sigurðsson sem skoraði sigurmarkið á 79.mínútu. En þetta var aðeins einn af 4 sigrum Hauka í fyrra.

Leikir liðanna í hittifyrra;

Mánudaginn 6.júní komu Haukar í heimsókn í Grafarvoginn og fóru með sigur að hólmi 4-2. Mörk Hauka skoruðu Daníel Einarsson, Kristján Ómar Björnsson & Hilmar Rafn Emilsson skoraði 2 mörk. Mörk Fjölnis skoraði Pétur G. Markan.

Föstudaginn 5.ágúst kíktu Fjölnismenn við í Hafnarfirðinu til að freysta þess að fá 3 stig, en það voru Haukamenn sem fóru með öll stigin 3. Leikurinn endaði 2-1 með mörkum frá Þorvaldi M.J. Gupmundssyni enn hann skoraði 2 mörk. Það var svo FH – ingurinn knái Atli Guðnason sem var þá á láni hjá Fjölni sem skoraði mark Fjölni.

Samkvæmt þessari tölfræði þá höfum við haft gott vald á Fjölnismönnum undanfarin ár. Og vonandi er það ekkert að fara að breytast.

Dómarar leiksins; Málarinn með meiru, Erlendur Eiríksson mun vera á flautunni í leiknum. Á línunni verða svo félagarnir Einar K. Guðmundsson og Þorvaldur Árnason.

Veðurspáin Haukaveðurspáin er mjög góð fyrir mánudeginum. Það verður örlítil gola, líklega smá hliðarvindur. Hiti verður um 12 – 15° og það verður ágætt fyrir markverði beggja liða að hafa með sér derhúfu, því Haukaveðurspáin spáir því að sólin muni láta sjá sig á leiknum. Ekki er búist við að áhorfendur þurfi að koma með regnhlífar en ágætt að vera með hana í bílnum. Ekki er búist við snjókomu þótt stutt sé til fjalla í Grafarvoginum.

Búningarliðanna; Haukar spila eins & flest allir vita í rauðum búningum, rauðum stuttbuxum & rauðum sokkum. Haukar spila í Hummel.

Fjölnismenn spila í gulum búningum, gulum stuttbuxum & gulum sokkum. Fjölnir spila í Errea.

Spásérfræðinga Haukar.is

Fyrir valinu voru þrír afbragðsmenn. Allir hafa þeir mikinn áhuga á knattspyrnu en misjafna getu hafa þeir samt sem áður. Elvar Geir Magnússon, blaðamaður DV, er mikill Leiknismaður. Magnús Már Einarsson, ritstjóri á Fótbolti.net, er Mosfellingur mikill og spilar knattspyrnu með Aftureldingu. Andri Janusson, er fyrrverandi leikmaður Hauka, en skipti yfir í Álftanes fyrir þetta tímabil. Við fengum þá alla til að spá fyrir spilin og voru þeir allir sammála um eitt að leikurinn yrði mjög spennandi.

Lítum á spá þeirra þriggja;

Elvar Geir Magnússon, blaðamaður DV; „Ég tel að þessi leikur fari í framlengingu. Það er langur vegur milli þessara liða á Íslandsmótinu og Fjölnir hefur ógnvænlega sóknarlínu. Þetta hefur hinsvegar verið að falla með Haukum í sumar og þeir mæta dýrvitlausir í þennan leik. Tel að Fjölnir klári þetta hinsvegar í framlengingunni.“

Magnus Már Einarsson, ritstjóri Fótbolti.net; „ Þetta verður hörkuleikur. Bæði lið hafa gert góða hluti með því að ná í 8-liða úrslitin. Ég ætla að segja að leikurinn fari í framlengingu og í vítaspyrnukeppni. Hvort Amir Mehica verði hetja Hauka eins og gegn Fram skal ósagt látið en úrslitin munu ráðast í bráðabana í vítaspyrnukeppni. “

Andri Janusson, fyrrv. Leikm. Hauka & nú leikmaður Álftanes; „ Haukarnir komast yfir á fyrstu 20 mínútunum með marki frá Ásgeiri Ingólfssyni og halda þeiri forystu inní hálfleik. Fjölnismenn byrja seinni hálfleikinn vel og skorar einn af FH – ingunum mark á fyrstu mínútum seinni hálfleiks. Davíð Ellertsson tryggir síðan Haukum sigurinn á 92.mínútu eftir hornspyrnu.“

Leikirnir í 8 – liða úrslitunum;

Á sunnudaginn;

Fylkir – ÍA

Breiðablik – Keflavík

Á mánudaginn;

Valur – FH

Fjölnir – Haukar