Unglingaflokkur karla í úrslit

Í gær léku 4. flokkur kvenna A lið og unglingaflokkur karla í undanúrslitum Íslandsmótsins. Á föstudaginn varð það ljóst að B lið 4.flokks kvenna leikur um 3. sæti Íslandsmótsins klukkan 10:00 í Austurbergi í dag.

A liðið tapaði sínum leik í gær og leikur því einnig um 3. sætið og hefst leikurinn þeirra klukkan 12:40 einnig í Austurbergi.

En góðu fréttir dagsins eru þær að unglingaflokks karla liðið okkar komst í gærkvöld í úrslitaleik Íslandsmótsins og mætir þar nágrönnum okkar úr FH. Leikurinn þeirra hefst klukkan 20:00 í kvöld í Austurbergi.

Fjölmennum á leiki liðanna og hvetjum okkar framtíðarfólk til dáða og vonandi bætast fleiri Íslandsmeistarar í hópinn hjá okkur um helgina en 5.flokkur karla A lið eru einu Íslandsmeistarar okkar eins og er, en fleiri flokkar eiga möguleika á því að verða Íslandsmeistarar um næstu helgi.

ÁFRAM HAUKAR!!