Tap á heimavelli gegn Val

HaukarÞað var systkinaslagur á Ásvöllum í kvöld þegar Haukar og Valur mættust í N1-deild karla. Búast mátti við hörkuleik eins og svo oft þegar þessi lið mætast, en Valsmenn þurftu nauðsynlega á báðum stigunum að halda til að koma sér í betri stðu í deildinni eftir hermilegt gengi að undanförnu.

Umfjöllun um leikinn má lesa með því að „lesa meira“.

Leikurinn byrjaði fjörlega og Valsmenn komust fljótlega tveimur mörkum yfir. Haukum gekk erfiðlega að komast í gegnum sterka vörn Valsmanna og eftir 12 mínútna leik voru Valsmenn 5-2 yfir og Aron Kristjánsson ákvað að taka leikhlé einu mörk Hauka komu úr hægra horninu frá Einari Erni og af vítapunktinum frá Sigurbergi.

Haukar svöruðu kallinum frá Aroni því næstu þrjú mörk leiksins voru Haukamanna og jöfnuðu Haukar því metin, 5-5. Haukarnir þurftu að bíða svo í tæpar tíu mínútur eftir næsta marki því Valsmenn breyttu stöðunni í 8-5 sér í vil en Elías Már minnkaði muninn í 8-6 þegar rétt rúmlega fimm mínútur voru til hálfleiks og áfram hélt Elías að skora fyrir Hauka því hann minnkað muninn í eitt mark tveimur mínútum seinna, 8-7. Bæði lið skoruðu svo tvö mörk hvor og staðan því í hálfleik 10-9 Valsmönnum í vil.

Valsmenn skoruðu fyrstu tvö mörk seinni hálfleiksins en Elías Már minnkaði muninn með marki úr hraðarupphlaupi og í leiðinni var einum Valsmanni vikið af velli. Þórður Rafn skoraði síðan sitt annað mark í leiknum og minnkaði muninn fyrir Hauka í eitt mark.

Það gekk afleitlega fyrir Hauka að skora í venjulegri sókn og komu einu mörk Hauka á fyrstu tíu mínútum seinni hálfleiks úr hraðarupphlaupi eða vítakasti. Mest náði Valsmenn fjögurra marka forskoti 16-12. Haukarnir náðu að minnka muninn en náðu þó aldrei að jafna og juku Valsmenn bara aftur forskotið og þegar rúmlega 10 mínútur lifðu leiks var staðan 14-18 Valsmönnum í vil og tók Aron Kristjánsson þá leikhlé.

Það leikhlé skilaði litlu líkt og leikhléið sem þjálfari Vals og aðstoðar landsliðsþjálfari Íslands, Óskar Bjarni Óskarsson tók, mínútu fyrir leikslok þegar Valsmenn höfðu fimm marka forskot, 23-18. Aron Kristjánsson þjálfari Hauka var ekki par sáttur með Óskar Bjarna, skiljanlega enda verulega heimskuleg og tilgangslaus ákvörðun hjá aðstoðar landsliðsþjálfara Íslands. Valsmenn héldu öruggri forystu út leikinn og höfðu að lokum fjögurra marka sigur, 20-24.

Markahæstur hjá Haukum var Sigurbergur Sveinsson með helming marka Hauka, 10 talsins. Elías Már skoraði sex mörk, Þórður Rafn gerði tvö mörk og Einar Örn og Heimir Óli gerðu síðan eitt markið hvor.

Birkir Ívar varði 16 bolta í markinu.