Sverrir að standa sig vel!!!!!

Hinn stórefnilegi Haukamaður Sverrir Þorgeirsson stóð sig vel á Politiken Cup í síðustu viku. Sverrir fékk 4,5 vinninga og vann skákmenn með á bilinu 1712-tæplega 2000 og gerði jafntefli við 3 á bilinu 2095-2195. Sverrir vann svo flokkin 1301-1450 og lenti í 8. sæti í unglingaflokki. Glæsilegt Sverrir og til hamingju!!!!
Þorgeir faðir Sverris stóð sig einnig vel og fékk einnig 4,5 vinninga og lenti í 2. sæti í flokknum 1151-1300. Þetta er athyglisvert hjá Þorgeiri sem er stigalaus og vann hann nokkra stigamenn á bilinu 1631-1839. Þetta verður vonandi hvatning fyrir Þorgeir að mæta á æfingar.
Hafsteinn Ágústsson keppti einnig á mótinu og fékk hann 5 vinninga og stóð sig einning vel.
Sigurbjörn Björnsson stóð sig líka frábærlega á mótinu og lenti í 4-13 sæti með 7,5 vinninga. Sigurbjörn vann í flokknum 2201-2350.
Enn og aftur til hamingju Haukamenn.
Þett verður vonandi hvatning fyrir aðra Haukamenn að fara að tefla erlendis.