Sverrir á Ólympíuskákmóti.

Hinn efnilegi skákmaður Sverrir Þorgeirsson er nú að tefla með Ólympíulið Íslands 16 ára og yngri í Singapore. Sverrir teflir á fyrsta borði í sveitinni.
Sverrir hefur sýnt það að hann er einn allra efnilegasti skákmaður sem að Ísland á um þessar mundir.
Þegar þetta er skrifað þá eru 2 umferðir búnar og er Sverrir búinn að vinna báðar sínar skákir.
Frábært hjá Sverri.
Sverri stendur einnig til boða að fara á Evrópumót unglinga í haust.
Skákdeild Hauka óskar eftir styrktaraðilum fyrir þá ferð. Áhugasamir hafið samband við aui@simnet.is eða Auðbergur í síma 821-1963