Í gær spiluðu strákarnir okkar æfingaleik gegn Stjörnunni á Ásvöllum. Stjörnumenn byrjuðu betur og náðu strax 5 marka forskoti en okkar strákar náðu að jafna í 13-13. Stjörnumenn náðu aftur forskoti sem okkar menn náðu aldrei að jafna og endaði leikurinn með tveggja marka tapi okkar manna.
Gísli Guðmundsson, nýr markmaður okkar Haukamanna, varði mjög vel í fyrri hálfleik. Magnús Sigumundsson kom svo inn á í síðari hálfleik og varði einnig ágætlega. Ennþá á eftir að pússa sóknarleikinn betur saman, margir nýir leikmenn komnir í liðið og þeir þurfa að venjast að spila með hverjum öðrum.
Strákarnir spila svo aftur æfingaleiki um helgina, gegn Val og Aftureldingu. Nánari upplýsingar um tíma á þeim kemur í kvöld eða á morgun.