Haukastrákarnir fá ekki langa hvíld eftir maraþonleikinn gegn FH um síðustu helgi. Á fimmtudaginn fara þeir norður yfir heiðar og etja kappi við sterkt lið Akureyrar sem er í þriðja sæti N1 deildar karla með 11 stig, einu færra en lið Hauka. Akureyri hefur verið á góðri siglingu í deildinni og unnið fimm leiki í röð, nú síðast Valsmenn fyrir norðan 3. desember sl. Það er því ljóst að um hörkuleik verður að ræða en liðin skildu jöfn í annarri umferð deildarinnar að Ásvöllum 24-24 um miðjan október. Leikurinn hefst kl. 19:00 og verður sýndur beint á SportTV. Þetta er næstsíðasti leikur strákana fyrir jól en þeir mæta HK í Digranesi 14. desember nk.
Lið Akureyrar er eingöngu skipað norðanmönnum og er sterk blanda af ungum leikmönnum í fremstu röð á borð við Odd Grétarsson, sem er markahæstur norðanmanna með 46 mörk til þessa, og reynslumeiri mönnum á borð við Heimi Árnason, Jónatan Magnússon, Árna Þór Sigtryggson og Guðlaug Arnarson. Á hliðarlínunni stendur svo fyrrum leikmaður Hauka til margra ára, Akureyringurinn Rúnar Sigtryggsson. Akureyri hefur tekist að rífa handboltann upp á nýjan leik í bænum og búa til frábæra umgjörð um leiki liðsins í gömlu Íþróttahöllinni. Þar eru ætíð þéttskipaðir bekkir og góð stemmning vel áður en leikirnir hefjast. Haukastrákarnir fá því kjöraðstæður til að spila handbolta á fimmtudag líkt og í Kaplakrika á síðastliðinn sunnudag.
Frekari upplýsingar um lið Akureyrar má nálgast á heimasíðu liðsins.