Eins og greint var frá á heimasíðunni í síðustu viku varð meistaraflokkur karla að sigra Val til að sleppa við sjósund, 1-1 jafntefli varð niðurstaðan í þeim leik og því beið þeirra sjósund og nú er komið að því að þeir taki út refsinguna.
Því þeir ætla í sjósund í dag klukkan 16:30 í Nauthólsvíkinni og munu þar þurfa að sýna listir sínar í sjóheiminum. Hilmar Rafn Emilsson sóknarmaður Hauka mun þó ekki synda í dag heldur mun hann þurfa að gera eitthvað annað í sjónum, enda er hann fastur í gifsi á hendi.
Það er svo búið að ákveða aukarefsinguna sem strákarnir fá, en hún er sú að ,,Snákurinn“ Sigurður Stefán Haraldsson liðstjóri liðsins fær að rasskella allt liðið. Ekki er búið að ákveða stað og stund við þann atburð.
Myndin hér til hliðar er af strákunum síðan í fyrra þegar þeir skelltu sér í sjósund. Við hvetjum Haukafólk til að kíkja við í Nauthólsvíkina og sjá strákana taka út refsinguna.