Strákarnir okkar halda nú eftir hádegið í vikulanga keppnis- og æfingaferð. Áfangastaðurinn er Danmörk þar sem meðal annars verður leikið á gífurlega sterku móti, hálfgerðu Norðurlandamóti.
Fyrstu þrjá daga ferðarinnar munu strákarnir dvelja í Stoholm, sem er staðsett rétt utan við Viborg á Jótlandi. Á miðvikudaginn munu þeir leika fyrsta leikinn en það verður gegn Skjern, gömlu lærisveinum Arons Kristjánsson, þjálfara okkar manna. Með Skjern leikur einn Haukamaður, en það er línumaðurinn snjalli Vignir Svavarsson.
Á fimmtudag verður svo haldið til austur til Silkeborgar. Þar munu strákarnir taka þátt á gífurlega sterku fjögurra liða móti, hálfgerðu Norðurlandamóti.
Mótherjar strákanna á mótinu verða fyrst lið Bjerringbro-Silkeborg, sem hefur styrkt leikmannahóp sinn mjög mikið fyrir átök vetrarins, meðal annars með því að kaupa hinn magnaða leikmann Lars Krogh Jeppesen frá Kiel í Þýskalandi.
Næst er röðin komin að lærisveinum hins þekkta Staffan Olson, betur þekktur sem "Faxi", í Hammerby. Hammerby eru núverandi sænskir meistarar.
Þriðja og síðasta liðið er svo hið sterka norska lið Sandefjord, sem við Haukamenn könnumst við frá Evrópukeppninni.
Strákarnir halda svo heim á leið á mánudaginn eftir viku. Þá verður stutt í Íslandsmótið og áætlað er að fyrsti leikur verði gegn Val föstudaginn 14. september í Vodafone höllinni, nýjum heimavelli Vals.