Á morgun, fimmtudag heimsækja okkar menn lið Stjörnunnar í Garðabæ. Leikurinn hefst klukkan 20.00 og hvetjum við allt Haukafólk að mæta á völlinn og styðja strákana.
Haukar eru í 4.sæti deildarinnar með 18 stig, tveimur stigum á eftir Stjörunnni sem eru í 3.sæti.
Leikstíll Stjörnumanna einkennist að mestu leyti af varnarleik. Undanfarið hefur sóknarleikur liðsins ekki verið upp á marga fiska og vonandi að það verði áfram. Stjarnan vann síðasta leik 1-0 gegn KA fyrir norðan. Þar sem Stjörnumenn skoruðu sigurmark sitt á 93.mínútu, en það mark var frekar skrautlegt í meira lagi. En þar áður töpuðu þeir fyrir Víkingum 1-2.
Gengi Haukana undanfarið er með öðru sniði en Stjörnunnar, sex sigurleikir í röð í deild og bikar og það gegn liðum eins og Berserkjum, ÍBV efsta liði 1.deildar og Landsbankadeildarliðinu HK. Úr þessum sex leikjum eru Haukar með markatöluna 13 – 4.
Dómari leiksins verður Magnús Þórisson og honum til aðstoðar verða þeir Gunnar Gylfason og Gunnar Jarl Jónsson. Þórður Georg Lárusson er svo eftirlitsmaður leiksins.
Stjörnumenn leika sína heimaleiki á gervigrasi líkt og Haukar. Stjörnumenn hafa að bjóða afar góða stúku sem ég hvet fólk til að kíkja í.
Styðjum strákana til að ná sjöunda sigrinum í röð og halda áfram þessari velgengni.
Stjarnan – Haukar , Garðabær klukkan 20:00 á morgun , Áfram Haukar !