Stelpurnar í meistaraflokki kvenna mæta í dag Val í lokaleik 2. umferðar Iceland Express-deildar kvenna.
Valur og Haukar eru taplausar í deildinni og það lið sem vinnur í dag skellir sér á topp deildarinnar ásamt Hamri.
Iceland Express-deild kvenna hefur farið fjörlega af stað og er ógjörningur að rýna í leikina fyrirfram og spá fyrir um úrslit.
Leikurinn í dag hefst kl. 18.00 og fer fram í Vodafone-höllinni heimavelli Valsstúlkna.
Mynd: Helena Hólm og stelpurnar í liðinu stefna á sigur í dag – stefan@haukar.is