Stelpurnar hefja leik í kvöld gegn FH

Karen Helga Díönudóttir fyrirliði mfl. kvennaKaren Helga er fyrirliði mfl. kvenna og þær hefja leik í kvöld í Krikanum gegn FH og hefst leikurinn kl. 20:00. Góðar fréttir bárust í dag en Madalina Puscas markvörður er komin með leikheimild. Heimasíðan setti sig í samband við Karen og fékk hana til að svara nokkrum spurningum:
Olísdeild kvenna hefst á morgun og er ykkur spáð 5. sæti, finnst þér það raunhæft markmið eða telurðu að þið hafið lið sem gæti gert betur og jafnvel farið alla leið?
„Það er mjög raunhæft að setja okkur í 5. sæti svona fyrir mótið, þar sem við erum með mjög svipað lið og í fyrra og stökk upp í 5. sætið væri ágætis árangur. En að sjálfsögðu ætlum við okkur lengra og teljum okkur vera vel tilbúnar í það. Markmiðið er að mæta í hvern einasta leik og berjast fyrir sigri, taka einn leik í einu og vonandi á endanum skilar það okkur þangað sem við viljum vera.

Telurðu að deildin í ár verði jafnari heldur en í fyrra?
„Já það lítur allt út fyrir að deildin verði jafnari, ég á von á að hún verði mjög áhugaverð og að fleiri leikir verði spennandi og að fleiri lið eigi eftir að blanda sér í baráttuna.“
Þið byrjið á útivelli gegn nágrönnunum úr FH, hvernig leggst sá leikur í ykkur?
„Mótið yfir höfuð leggst bara mjög vel í okkur og það er kominn mikill spenningur fyrir fyrsta leik. Að sjálfsögðu er það bónus að fyrsti leikurinn sé á móti FH, það eru alltaf skemmtilegustu leikirnir. Ég á von á mikilli baráttu frá hverjum einasta leikmanni inn á vellinum í báðum liðum, sem mun gera leikinn skemmtilegan. En markmiðið var að mæta í hvern einasta leik og berjast fyrir sigri, þessi leikur verður engin undantekning.“

„Liðið ætlar sér stærri hluti en í fyrra og það gengur alltaf best þegar það er jákvæður og skemmtilegur stuðningur frá stuðningsmönnum. Ég hvet alla til að mæta á völlinn í vetur og horfa á spennandi handbolta, svo eru auðvitað FH-Hauka leikirnir alltaf skemmtilegir og við hlökkum til að sjá ykkur á vellinum kl.20:00 í kvöld.

 

Madalina er komin með leikheimild og verður í eldlínunni í kvöld gegn FH

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Áfram Haukar!