Nú er innan við vika í mót og það þýðir eitt, Stefán Daníel Jónsson situr fyrir svörum hér á Haukar.is. Stefán gekk til liðs við Hauka fyrir síðasta tímabil frá Hamri. Hann spilaði stærra og stærra hlutverk í liðinu þegar leið á sumarið og spilaði bæði sem bakvörður og miðjumaður.
Hann er brattur fyrir sumarið eins og hver annar Haukari, enda lítið annað hægt í stöðunni. Áður en við vindum okkur í viðtalið, hvet á alla Haukara til að fjölmenna á kynningarfund meistaraflokkana í kvöld að Ásvöllum klukkan 18:15.
Nú eru þið komnir frá Portúgal, hvernig var sú ferð?
Já ferðin gekk mjög vel, þrátt fyrir að veðrið hafi ekki verið það besta. Hún var mjög mikilvæga til að þjappa hópnum saman fyrir komandi átök, kynnast liðsfélögunum betur og náttúrulega að æfa við toppaðstæður á grasi tvisvar á dag.
Var eitthvað sem stóð uppúr í ferðinni?
Ekkert sérstakt sem stóð upp úr annað en það kannski að vera í mikilli óvissu með heimferð sem gekk þó upp á endanum. Einnig það hvað ungir unnu gamla þvílíkt sannfærandi eftir miklar yfirlýsinga þeirra gömlu.
Það er ekki langt síðan þú varst að spila með Hamri í 2.deildinni en ert núna á leiðinni að fara spila í Pepsi-deildinni, hvernig er tilhugsunin?
Það er náttúrlega gríðarleg tilhlökkun að fara að spila meðal þeirra bestu og það segir sig sjálft að það er í raun himinn og hafs á milli pepsí deildarinnar og 2 deildar. Engu að síður fékk ég fína reynslu bæði í 2 deildinni fyrir tveimur árum og svo í 1 deildinni í sumar og nú er bara að taka næsta skref.
Þú varst svolítið að flakka um stöður á síðasta tímabili, spilaðir fyrst til að byrja með á miðjunni, svo spilaðir þú einnig í hægri bakverði og einnig eitthvað á kantinum, býstu við svipuðu flakki í sumar ? og hvar líkar þér best á vellinum?
Er einnig búin að vera að flakka um stöðu á undirbúningstímabilinu aðallega á milli miðju og kants. Þannig að ég tel það nokkuð líklega að það verði eitthvað flakk á mér í sumar en annars er ég bara sáttur svo lengi sem maður er inn á vellinum. Ég spilaði lang mest sem miðjumaður upp alla yngri flokkana og verð eiginlega að segja að það sé svona sú staða sem ég kannast best við.
Hvert er raunverulegt markmið fyrir sumarið?
Raunverulegt markmið hlýtur að vera að festa sig í sessi í efstu deild.
Held þó að það sé þó best að setja sér fyrst skammtíma markmið t.d. fyrir fyrstu leikina áður farið er að horfa eitthvað lengra og er það eitthvað sem að hópurinn á eflaust eftir að ræða saman þegar að nær dregur.
Hverjir verða styrkleikar Hauka í sumar?
Samheldni liðsins, góður mórall menn þekkjast vel bæði innan og utan vallar, einnig höfum æft mjög vel í vetur og ættum því að vera líkamlega tilbúnir í átökin.
Þegar þú komst til Hauka fyrir síðasta tímabil, hvernig leist þér á klúbbinn og var það eitthvað sem kom þér á óvart hjá félaginu og liðinu?
Ekkert nema gott að segja um Hauka, flottur klúbbur og svona fjölskylduklúbbur þar sem allir leggja sitt af mörkum til að halda í fremstu röð, annars það sem helst kom mér á óvart var gæði leikmanna í liðinu, sérstaklega marga efnilega uppalda leikmenn sem eiga bara eftir að verða betri.
Við þökkum Stefáni kærlega fyrir þetta, við höldum áfram með viðtölin hér á næstu dögum, en minnum á að fyrsti leikur Hauka í Pepsi-deild karla er á þriðjudaginn næstkomandi í Vesturbænum í Reykjavík, Frostaskjóli þeirra KR-inga!