Á laugardag er sannkallaður risa leikur á dagskrá þegar Haukar og FH mætast í úrslitaleik Íslandsmóts 2.flokks karla í handbolta í Heartz höllinni Seltjarnarnesi. Leikurinn hefst kl.19:00 og vekjum við sérstaka athygli á því að frítt er á völlinn!
Strákarnir okkar lögðu UMFA á sannfærandi á miðvikudag í Íþróttahúsinu í Strandgötu þar sem mikil stemmning var meðal áhorfenda.
Haukafólk má ekki láta sig vanta á þennan stórviðburð hjá leikmönnum framtíðar í meistaraflokki félagsins! Mætum öll á laugardaginn og gerum leikinn ógleymanlegan fyrir strákana með dynjandi stemmningu og gleði á pöllunum. Áfram HAUKAR!