Stórir leikir framundan

Minni á leik Víkings og Hauka í 1. deild karla í kvöld kl. 20:00 á Víkingsvellinum.

Haukar eru sem stendur með 10 stig í 5. sæti deildarinnar en geta með sigri komist í 3. sætið.

Síðan er stórleikur á Hlíðarenda næstkomandi mánudagskvöld, þar mætum við Valsmönnum í Visa bikarkeppni karla. Valsmenn eru á mikilli siglingu þessa dagana og þeir verða örugglega erfiðir heim að sækja.

Nú verða allir Haukamenn að mæta á völlin og styðja við bakið á strákunum í næstu leikjum.