Í dag skrifaði Spánverjinn, Alexandre Garcia Canedo undir samning við Hauka sem gildir út tímabilið.
Alexandre er því þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við Hauka í félagsskiptaglugganum sem opnaðist 15.júlí.
Hann er 24 ára gamall og var síðast samningsbundinn Barcelona en var leystur undan samning árið 2006.
Síðan þá hefur hann spilað áhugamannabolta og stundað nám í Bandaríkjunum.
Hann spilar framarlega á vellinum og er með gott markanef og hefur hann kennt Lionel Messi góð ráð en þeir spiluðu saman með yngri liðum Barcelona hér áður fyrr.
Hér að neðan er linkur á video-i af Spánverjanum okkar, en til að mynda er það Messi sjálfur sem lagði upp fyrsta markið á hann í þessu video-i.
Reynt er að vinna í því að hann verði orðinn löglegur fyrir næsta leik, gegn FH. Hérna er video-ið.