12 manns mættu á skákæfinguna á þriðjudaginn var. Stefán Freyr og Heimir urðu efstir og jafnir með 1 niður, en Stefán fær nafn sitt skráð á undan þar sem hann vann innbyrðisviðureignina. Varði náði að leggja Stefán að velli eftir mikinn tímahraksbarning í hróksendatafli, en tapaði fyrir Heimi. Varði gerði svo jafntefli við Guðmund og Magnús og hafnaði í 3.sæti.
1-2. Stefán Freyr 10 af 11
1-2. Heimir 10 af 11
3. Varði. 9
4. Stefán P. 7
5-6. Guðmundur 6
5-6. Jón M. 6
7. Ingi Tandri 5
8. Magnús 4,5
9-10. Árni 3
9-10. Sverrir eldri 3
11. Kristján Ari 1,5
12. Ragnar 1