Kæra Haukafólk,
Viðtökurnar vegna Sjávarréttarkvöldsins sem haldið verður eftir leik Hauka gegn Grosswaldstadt hafa verið frábærar. Þegar eru ca. 100 miðar seldir af þeim 200 sem í boði eru.
Við munum selja miða á Sjávarrétarkvöldið á leik okkar gegn Val á morgun (miðvikudag). Einnig verður hægt að nálgast miða hjá Ásdísi í Haukaheimilinu á fimmtudag og föstudag. Síminn hjá Ásdísi er 848-0417 og netfangið er innkaup@haukar.is
Ég hitti haukamanninn Úlfar Eysteinsson í dag þar sem hann fór yfir matseðilinn á laugardaginn og hann er ekki af verri endanum;
Skötuselur, humar á spjóti, gellugratín, sjávarsallat, grillaður hvalur, reyktur lundi, lax, svartfugl, lúða, súrhvalur, kryddsíld, plokkfiskur og meira til.
Verð fyrir Hauka í horni er 4.500. og 5.500 fyrir þá sem ekki eru í Haukum í horni.
Með haukakveðju
Birkir Ívar
