Annar sigur 3.flokks karla er nú orðin staðreynd. Fyrir leikinn voru Haukar með einungis 4 stig, sigur gegn ÍBV á heimavelli og jafntefli gegn Val einnig á heimavelli. En það má bæta því við að í átta af tólf leikjum í sumar voru strákarnir búnir að halda markinu hreinu í fyrri hálfleik og því má með sanni segja að seinni hálfleikur hjá liðinu hefur verið þeirra helsti hausverkur.
Leikið var gegn HK á gervigrasinu á Ásvöllum. Mjög gott fótboltaveður var til staðar og því ekkert til fyrirstöðu að spila góða knattspyrnu.
Dómari leiksins var Friðþjófur Blöndal, leikmaður 2.flokks Hauka.
Leikurinn byrjaði frekar fjörlega og fengu Haukar fyrstu færin í leiknum. Eitt dauðafæri fór forðgörðum, eftir mistök hjá markverði HK. Haukarnir voru ívið sterkari í fyrri hálfleik, þótt HK hafi komist meira inní leikinn þegar á leið fyrri hálfleikinn. Staðan í hálfleik var 0-0.
Seinni hálfleikurinn byrjaði rólega og sóttu bæði lið og áttu sín færi. Gestirnir áttu engin hættuleg færi en áttu tvö skot í slá langt utan af velli. Fyrsta og eina mark leiksins skoraði Ingi Hrafn Traustason, eftir misskilning milli markvarðar og varnarmanns gestanna, náði Ingi þá að komast inní sendingu frá varnarmanninum og var Ingi því einn á móti marki og skoraði laglegt mark. Eftir þetta voru HK-ingar meira með boltann og reyndu að jafna leikinn. Þeir áttu nokkur góð færi sem markvörður Hauka varði. Það var svo á síðustu mínútu leiksins sem einn leikmaður gestanna skaut að marki Hauka langt utan af velli og átti markvörður Hauka í örlitlum vandræðum með það skot en náði að lokum að slá boltann í slánna og greip svo boltann, eftir útsparkið var svo flautað til leiksloka.
Eftir leikinn er því ljóst að öll 7 stigin sem Haukar hafa fengið í sumar hafa verið á heimavelli. Hvort heimadómgæslu sé að ræða, þá get ég sem leikmaður flokksins fullyrt ykkur það, að svo hefur ekki verið í sumar.
3.flokkur leikur svo sinn síðasta leik í riðlinum gegn ÍBV í Eyjum á sunnudaginn, en ÍBV vermir neðsta sætið í riðlinum 3 stigum eftir Haukum.