Sunnudaginn 10. júlí mættust Haukar og Þór í 2. flokki karla og búist var við hörkuleik. Á laugardeginum hafði Þór tapað gegn Stjörnunni en fyrr í vikunni höfðu Haukarnir náð jafntefli gegn HK. Þórsarar byrjuðu með sterkan vind í bakið og virtist eins og það hefði einhver áhrif á spilamennsku Haukamanna, því hún var ekki upp á marga fiska í fyrri hálfleik. Lítið var um spil og voru menn ekki nægilega grimmir. Þórsarar voru alltaf líklegri, þótt þeir væru einum færri mestallan fyrri hálfleikinn en á 10. mínútu var leikmaður þeirra réttilega rekinn af velli fyrir fólskulega tæklingu á Sigurbjörn, markverði Hauka. Haukar fengu þó tvö góð marktækifæri í fyrri hálfleiknum. Andri fékk góða sendingu inn fyrir vörn Þórsara en markvörðurinn sá við honum og undir lok hálfleiksins komst Garðar inn fyrir vörnina og skaut að marki en boltinn fór í stöngina og Þórsarar náðu að bægja hættunni frá áður en Haukamenn komust í boltann. Var það fyrri hálfleikur í hnotskurn, Haukarnir voru einfaldlega ekki mættir þegar á reyndi. Þegar fyrri hálfleikur virtist vera að fjara út náðu Þórsarar að skora. Hár bolti kom inn fyrir vörn Haukanna, Þórhallur misreiknaði boltann og sóknarmaður þeirra náði að koma boltanum fram hjá Sigurbjörni og í markið. 1-0 var því staðan fyrir Þórsara í hálfleik.
Haukarnir komu mun einbeittari til leiks í seinni hálfleik enda hafði Janus þjálfari lesið rækilega yfir hausamótunum á leikmönnum sínum. Hann gerði jafnframt eina skiptingu í leikhléi, Hilmar Rafn, sem er markahæsti leikmaður 1. deildar karla, kom inn á fyrir Viktor og fór beint í fremstu víglínu. Haukarnir byrjuðu seinni hálfleik mun betur en norðanmenn og náðu fljótlega að skora. Garðar fékk þá sendingu úti á hægri kantinum, kom boltanum fyrir markið þar sem Andri var vel staðsettur og hann kom boltanum í netið, 1-1. Þetta gerðist á 49. mínútu. Fjórum mínútum seinna eða á 53.mínútu kom hár bolti frá hægri yfir á Guðjón, sem stóð utarlega í vítateignum vinstra megin. Guðjón var ekkert að tvínóna við hlutina, heldur tók við boltanum og lagði hann svo laglega í fjærhornið. Á 61. mínútu komust Haukar svo í 3-1 þegar Garðar skaut að marki í vítateignum, markvörðurinn varði skotið en Andri náði frákastinu og skoraði. Haukarnir virtust þá líklegri til að bæta við heldur en Þór að minnka muninn og fengu einnig góð færi, sem þeir hefðu átt að nýta. T.a.m. fékk Hilmar Rafn boltann á markteig eftir hornspyrnu en á illskiljanlegan hátt kom hann boltanum fram hjá markinu. Að sögn Hilmars lá boltinn ekki vel fyrir honum! Þórsarar náðu að halda sér inni í leiknum með því að skora á 73. mínútu. Kom þá há sending inn fyrir vörn Haukanna og misreiknaði Sigurbjörn sig í úthlaupi og náði framherji þeirra að koma boltanum í markið. Var þetta aðeins eina marktækifæri norðanmanna í öllum hálfleiknum. Ekki voru skoruð fleiri mörk, þrátt fyrir ágætistækifæri heimamanna. 3-2 sigur heimanna var því staðreynd.
Haukarnir voru yfir heildina sterkari aðilinn í leiknum en einungis góður seinni hálfleikur gerði það að verkum. Í fyrri hálfleik voru allir að spila undir getu en til leiks í síðari hálfleik kom allt annað lið. Baráttan var til staðar og auk þess fékk boltinn að ganga vel á milli manna. Þeir náðu að skapa sér góð marktækifæri auk markanna og hefði sigurinn gjarnan verið stærri. Haukarnir verða þó að koma mun betur stemmdir til leiks í næsta leik á móti Þrótturum, sem fram fer nk. mánudag kl. 8 á Ásvöllum.
Lið Hauka var þannig skipað:
Sigurbjörn
Frans-Dagur-Ellert-Þórhallur
Guðjón-Jónas-Hilmar Trausti-Viktor Ingi
Garðar-Andri
Hilmar Rafn skipti svo við Viktor Inga á 46. mínútu, Guðbjörn við Hilmar Trausta á 59. mínútu, Guðmundur Freyr við Frans á 64.mínútu, Vilhjálmur við Garðar á 85. mínútu og loks skipti Björn Ingi við Guðbjörn á 90. mínútu.