Sigur í spennuleik

Sigurbergur Sveinsson skorar sigurmarkið úr vítakastiSigurbergur Sveinsson tryggði Haukum eins marka sigur á Val í toppslag í N1 deild karla í kvöld með því að skora úr víti eftir að leiktíminn rann út. Sigurbergur átti einmitt sendingu frá miðju niður í horn þegar örfáar sekúndur voru eftir og Valsmenn höfðu jafnað leikinn og Guðmundur Árni Ólafsson fór inn og sótti vítakastið. Sigurbergur Sveinsson fór mikinn í leiknum og skoraði 9 mörk og Aron Rafn átti stórleik í markinu og varði 24 skot þar af fjölmörg úr sannkölluðum dauðafærum. Lokatölur 25-24 og Haukar með örugga forystu á toppi deildarinnar.

Það vill oft gerast að lið mæti hálf kærulaus til leiks eftir að hafa unnið bikarmeistaratitilinn og steinliggi í næsta leik. Haukastrákarnir unnu því gríðarlega mikilvægan sigur í kvöld með því að leggja Valsmenn með einu marki. Ungu strákarnir gegndu stóru hlutverki í leik liðsins í kvöld auk þess sem Sigurbergur mætti mjög einbeittur til leiks. Aron Rafn Eðvarðsson stóð allan tímann í marki heimamanna og varði eins og berserkur. Í mörgum tilvikum varði hann nokkur skot í röð í sömu sókn og fjölmörg hraðaupphlaup Valsmanna fóru í súginn þar sem Aron lokaði hreinlega markinu.

Næsti leikur Haukastrákanna er á sunnudaginn á útivelli gegn Gróttu. Hér að neðan má sjá myndir úr leiknum sem Pétur Haraldsson tók.

Sigur í spennuleik

Haukar gerdu góda ferd í Röstina í Grindavík í kvöld en lidid sigradi heimamenn í Grindavík med 2 stigum, 88-90, eftir ad jafnt hafdi verid eftir venjulegan leiktíma 81-81.

Kiera Hardy var en og aftur med stórleik en hún skoradi 40 stig.

Mynd: Kristrún Sigurjónsdóttir átti fínana leik fyrir Haukavf.isHaukar gerdu góda ferd í Röstina í Grindavík í kvöld en lidid sigradi heimamenn í Grindavík med 2 stigum, 88-90, eftir ad jafnt hafdi verid eftir venjulegan leiktíma 81-81.

Kiera Hardy var en og aftur med stórleik en hún skoradi 40 stig.

Mynd: Kristrún Sigurjónsdóttir átti fínana leik fyrir Haukavf.is