Meistaraflokkur Hauka spilaði sinn fyrsta leik í 2. deildinni sumarið 2007. Leikurinn var á móti ÍH sem komu upp úr 3. deildinni síðasta sumar. ÍH var spáð 8. 9. sæti en Haukum var spáð 1. sæti.
Leikurinn var háður á Ásvöllum á hinum sígræna gervigrasvelli Hauka. Annars var umgjörð leiksins ekki upp á marga fiska þar sem hefði þurft girða völlinn af sem og aðstöðu fyrir blaðamenn og hljóðgræjur. Verðið var nokkuð gott, svalt, gola og hálfskýjað.
Byrjunarlið Hauka var þannig skipað að Amir var í markinu, fyrir framan hann voru Jónas, Óli Jón, Edilon og Davíð E. Á miðjunni voru Úlfar, Árni, Goran, sem jafnframt var fyrirliði og svo var það Hilmar Geir. Í fremstu víglínu voru Hilmar Emils og Ómar Karl.
Leikurinn byrjaði með því að bæði lið voru að þreifa fyrir sér. Liðin sköpuðu sér þó engin almennileg marktækifæri. En á 11. mínútu voru það Haukar sem sköpuðu sér fyrsta marktækifæri leiksins en það var Himar Emils en hann átti góðan einleik upp hægri kantinn og lék framhjá tveimur varnarmönnum ÍH. Hilmar komst einn á móti Sigmari Inga Sigurðarsyni markmanni ÍH en hann var engin fyrirstaða fyrir Hilmar sem skoraði laglega framhjá Sigmari og staðan orðin 1 0 fyrir Hauka.
Næsta góða sókn leiksins kom ekki fyrr en á 25. mínútu en þá áttu Haukar góða sókn sem endaði með skoti frá Úlfari beint á Sigmar í marki ÍH. ÍH átti sitt fyrsta marktækifæri í leiknum á 28. mínútu þegar Gunnar Hólmgeir Bjarnason komst einn inn fyrir vörn Hauka en Jónas náði að komast fram fyrir Gunnar og bjarga í horn.
Fjórum mínútum fyrir leikhlé fengu Haukar aukaspyrnu fyrir utan vítateig ÍH, Haukar tóku spyrnuna fjótt og Ómar Karl komst einn inn í gegn og átti skot sem Sigmar í marki ÍH varði í varnarmann ÍH og þaðan í netið og staðan orðin 2 0. Stuttu síðar vann Ómar Karl botann og gaf boltann á Edilon sem átti skot rétt framhjá. Síðasta færi fyrri hálfleiks átti ÍH en þá komst Gunnar Hólmgeir einn inn fyrir en Amir varði vel.
Í hálfleik gerðu Haukar breytingu á liði sínu en þá kom Kristján Ómar inn fyrir Hilmar Geir. Á 50. mínútu gerðist leiðinlegt atvik þegar Haukur Ársælsson úr ÍH fór úr mjaðmalið en Heiðar Austmann ÍH-ingur og útvarpsmaður með meiru var fljótur á koma af bekknum og hringja á sjúkrabíl.
Á 63. mínútu átti Kristján Ómar góða fyrirgjöf á Goran sem átti skalla beint á mark ÍH. Mínútu síðar átti Goran aðra marktilraun en þá fór skot hans rétt framhjá. Á 67. mínútu átti Sigmar markmaður ÍH lélegt útspark sem fór beint á Kristján Ómar sem lyfti boltanum laglega yfir Sigmar og staðan orðin 3 0. Á sömu mínútu gerðu Haukar breytingu á liði sínu en þá fór Árni út en Ómar Bangsi Rafnsson inn.
Helsta sókn ÍH í leiknum var á 77. mínútu þegar Egill Einarsson átti skot yfir mark Hauka eftir að hafa fengið góða fyrirgjöf. Hilmar Emils komst einn í gegn mínútu síðar en Sigmar markmaður ÍH náði boltanum. Fleira markvert gerðist ekki í leiknum.
Þessi fyrsti leikur sumarsins var þokkalegur þó var vorbragur af leiknum. Haukar hefðu þó mátt fara aðeins betur með færin sín. Bestu menn Hauka í leiknum voru Óli Jón sem hélt vörninni saman og Goran sem spilaði mjög vel á miðju Hauka. Næsti leikur liðsins er á móti Völsungi á Húsavík á sunnudaginn kemur en næsti heimaleikur er laugardaginn 26. maí kl. 16. 00 á móti KS/Leiftri. Áfram Haukar!!!