Sigur í fyrsta leik Lengjubikarsins hjá stelpunum

Haukastúlkur hófu titilvörn sína í Lengjubikarnum í gær þegar að liðið vann Fjölni í Schenker-höllinni, 55-52. Haukar leiddu nánast allan leikin og fengu allir leikmenn Haukaliðsins að spreyta sig.

Þar bar einna helst til tíðinda að tvær ungar og efnilegar stúlkur þeyttu frumraun sína með meistaraflokki, þær Sylvía Hálfdánardóttir og Þóra Kristína Jónsdóttir, og stóðu þær sig með miklum sóma.

Haukar leika næstu tvo leiki á útivelli gegn Valsstúlkum í Vodafone-höllinni á laugardaginn annars vegar og svo gegn Hamri í Hveragerði á miðvikudaginn í næstu viku hins vegar.

Laugardagur 15.sept kl.16:30 Valur-Haukar
Miðvikudagur 19.sept kl.19:15 Hamar-Haukar
Laugardagur 22.sept kl.16:30 Haukar-Snæfell