Sigur í Árbænum – Stórleikur í Strandgötunni á laugardag

Ramune var markahæst gegn Fylki eins og svo oft áðurMeistarflokkur kvenna sótti Fylki heim í gær í Árbæinn og unnu góðan sigur 25-28. Haukastelpurnar eru enn sem fyrr í fjórða sæti deildarinnar og eru með átta stiga forskot á FH í fimmta sæti sem hefur leikið einum leik meira en Haukar. Sæti í úrslitakeppninni er því svo gott sem öruggt en Stjarnan er þremur stigum á undan Haukum í 3. sætinu. Ramune Pekarskyte var markahæst í leiknum í gær með 9 mörk. Næsti leikur Haukastelpnanna er á laugardaginn þegar Fram kemur í heimsókn en sá toppleikur fer fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu vegna kosninganna og hefst kl. 16:00. Allir á Strandgötuna!