Á fimmtudagskvöldið sigruðu strákarnir Stjörnuna 5-4 í ótrúlegum leik.
Edilon kom okkar mönnum yfir eftir níu mínútur.
Stjörnumenn svöruðu með tveimur mörkum á þremur mínútum, staðan því orðin 2-1, Stjörnunni í vil og korter liðið af leiknum.
Hilmar Geir jafnaði síðan þegar 22.mínútur voru búnar, 2-2.
Og sjö mínútum síðar kom Denis Curic okkar mönnum yfir 3-2.
Ekkert var skorað meira fyrr en á 81.mínútu, en þá jöfnuðu Stjörnumenn leikinn 3-3, með marki frá Þorvaldi Árnasyni sem hafði þá skorað öll mörk Stjörnumanna.
Okkar menn lögðu ekki árár í bát, og mörk frá Hilmari Geir á 84.mínútu og mark frá Edilon úr víti á 86.mínútu nánast gulltryggðu sigurinn, þó að Stjörnumenn hefðu minnkað muninn í uppbótartíma. Lokastaðan 5-4.
Með sigrinum komust okkar menn uppfyrir Stjörnuna í 3.sætið og eru Haukarnir einungis stigi á eftir Selfoss sem eru í 2.sæti.
Og nú er mótið hálfnað.
Næsti leikur er síðan gegn Víking Ólafsvík, á Ólafsvík. Leikurinn verður leikinn á fimmtudaginn klukkan 20.00.
Við hvetjum alla Haukamenn að fjölmenna á Ólafsvík á fimmtudaginn. Gengi Hauka hefur verið ótrúlegt í sumar og áhorfendafjöldi á Haukaleikjum fer alltaf hækkandi. Það yrði frábært ef Haukafólk mundi sjá sig fært um að mæta á leikinn hjá strákunum í Ólafsvík því þeir eiga það alveg fullkomlega skilið.
Leikurinn gegn Ólafsvíkingum er síðasti leikurinn í deildinni áður en strákarnir mæta Fylki í 8-liða úrslitum á Ásvöllum, nánar um það síðar.
—————–
Ein frábær ástæða afhverju fólk ætti að kíkja í Ólafsvík á fimmtudaginn;
Marco Krisch fær leikheimild á þriðjudaginn og verður því gjaldgengur í leikinn á fimmtudaginn. Og hver veit nema Andri leyfi honum að sprikla í nokkrar mínútur.
ÁFRAM HAUKAR – ALLIR Á VÖLLINN !