Haukar innbyrtu dramatískan sigur gegn Val í N1 deild karla fyrr í kvöld. Leikurinn var allan tímann mjög jafn og spennandi, hálfleikstölur 10-12 fyrir gestina.
Hálfleikshléð virtist gera Haukastrákum gott því staðan varð fljótt 16-13 fyrir Hauka. Það var svo á lokamínútunni, nánar tiltekið 8 sekúndum fyrir leikslok sem Valsmenn jafna 22-22. Hröð miðja er tekin og botinn sendur á Einar Örn Jónsson sem skoraði mjög dýrmætt mark 2 sekúndum áður en flautan gall.
Næsta verkefni Haukastráka er á laugardag klukkan 17:00 en þá leika þeir seinni leikinn í einvígi við TV Grosswallstadt frá Þýskalandi en fyrri leiknum lauk með 2 marka sigri Grosswallstadt, 26-24.
Sjáumst á laugardag!