Í dag var Sara Björk Gunnarsdóttir leikmaður meistaraflokks kvenna valin í A – landslið kvenna.
En Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari kvenna tilkynnti 18 manna leikmannahóp sinn sem mætir Slóveníu ytra 26.ágúst, en leikurinn er í undankeppni Evrópumótsins 2009.
Sara Björk er eini nýliðinn í hópnum, en hún hefur staðið sig mjög vel í sumar eftir mikil meiðsli síðustu ár. Hún hefur skorað 12 mörk í 9 leikjum fyrir Hauka á tímabilinu og hún stóð sig mjög vel með U-19 landsliðinu sem lék hér á landi í Evrópumótinu.
En þá má einnig segja frá því að Sara Björk er einungis 17 ára og því greinilega framtíðar leikmaður hér á ferð.
Við óskum Söru Björk til hamingju með að vera valin í A-landsliðið.