Samstarfssamningur Hauka og Hafnarfjarðarbæjar undirritaður um frístundaheimili.

Haukar logo fréttirHafn­ar­fjarðarbær og Knatt­spyrnu­fé­lagið Hauk­ar hafa und­ir­ritað samn­ing um rekst­ur frí­stunda­heim­il­is á veg­um Hauka  fyr­ir börn á aldr­in­um sex til níu ára með stuðningi Hafn­ar­fjarðarbæj­ar.

Haukar byrjuðu í fyrra með frístundaheimili og gekk það einstaklega vel og var mikil ánægja með starfsemina og þá þjónustu sem Haukar voru að bjóða en þetta hentar einstaklega vel fyrir þau börn og foreldra þar sem þetta tengir saman skóla og æfingar fyrir yngstu iðkendur okkar.

Í ár er Íris Óskarsdóttir umsjónarmaður frístundaheimilisins.

Í gær fjallaði mbl.is um samninginn á milli Hauka og Hafnarfjarðar og hægt er að lesa þá frétt hér, http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/10/13/haukar_i_rekstur_fristundaheimilis/