Sæunn Björnsdóttir hefur framlengt samning sinn við Knattspyrnudeild Hauka og gildir nýr samningur til 31. desember 2019.
Sæunn sem verður 16 ára síðar í þessum mánuði hefur nú þegar spilað 39 leiki með meistaraflokki kvenna þrátt fyrir ungan aldur.
Sæunn hefur verið valin efnilegasti leikmaður meistaraflokks kvenna síðustu tvö ár og fagnar knattspyrnudeild Hauka nýjum samningi við hana. Hún lék vel í Pepsi deildinni í sumar og var meðal annars einu sinni valin í lið vikunnar. Þá hefur Sæunn einnig verið valin í úrtök yngri landsliða.
,,Sæunn er mjög hæfileikaríkur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér og ég er gríðarlega ánægður að hún skuli skuldbinda sig því verkefni sem við erum að fara í hjá Haukum. Hún verður án efa mikilvægur hlekkur í okkar liði og mun jafnframt fá nauðsynleg og krefjandi verkefni sem munu klárlega hjálpa henni að þroskast. Sæunn er örugg á boltann, útsjónarsöm og síðast en ekki síst grjóthörð,“ segir Jakob Leó Bjarnason, þjálfari meistaraflokks kvenna.

Sæunn og Jakob við undirritun samningsins í kvöld.